mbl.is
#31. - Ónýtur lúxusleikskóli og orlof borgarstjóra
- Title
- #31. - Ónýtur lúxusleikskóli og orlof borgarstjóra
- Runtime
- 1:14:51
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Í þættinum situr Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur fyrir svörum. Kastljósinu er beint að íbúðauppbyggingu í borginni, vandaræðagangi með leikskólahúsnæði og biðlista eftir plássum sem honum hlýst. Þá er Einar einnig spurður út í nýjar upplýsingar um himinháar orlofsgreiðslur sem fráfarandi borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, fékk í vasa sinn vegna ónýttra orlofsdaga áratug aftur í tímann.
Að auki mæta þau Sigríður Á. Andersen, fyrrum dómsmálaráðherra og Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi, til leiks og ræða fréttir vikunnar og það helsta sem borið hefur til tíðinda á liðnu sumri. Spjallið er líflegt enda eru þau Sigríður og Stefán á sitthvorum enda hins pólitíska litrófs.
- Title
- #35. - Misheppnuð mótmæli og sjávarútvegurinn pakkar í vörn
- Runtime
- 1:12:00
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála. Lagabreytingatillögur Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra hafa að undanförnu hlotið mikla gagnrýni af hálfu forsvarsmanna SFS og verður Heiðrún Lind meðal annars krafin svara um rétt og sanngjörn afgjöld fyrir sjávarauðlindina við strendur Íslands.
Þau Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, mæta einnig í settið og rýna í það sem helst bar á góma í fréttum líðandi viku; setningu þingsins, stefnuræðu forsætisráðherra, mótmæli launafólks á Austurvelli og margt fleira.
- Title
- #27. - Bjarni á pólitísku jarðsprengjusvæði?
- Runtime
- 1:22:45
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Bjarni Benediktsson nýskipaður forsætisræðherra fer yfir málin með Stefáni Einari. Til umræðu er ríkisstjórnarsamstarfið, ríkisfjármálin, nýkjörinn forseti, hvalveiðar og hælisleitendamál svo eitthvað sé nefnt.
Stór mál hafa beðið afgreiðslu í þinginu undanfarið en ný yfirstaðnar forsetakosningar höfðu áhrif á störf þingmanna og ríkisstjórnar sem nú er sögð hanga á bláþræði eftir brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur.
Auk hans koma þau Gunnar Bragi Sveinsson fyrrverandi ráðherra og Sandra Hlíf Ocares varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fara yfir það sem komst í hámæli í vikunni.
- Title
- #28. - Dagur svarar fyrir bensínstöðvalóðirnar
- Runtime
- 1:15:37
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Dagur B. Eggertsson hefur setið undir töluverðri gagnrýni að undanförnu fyrir embættisfærslur í borgarstjóratíð sinni.
Því hefur verið haldið fram að Reykjavíkurborg hafi veitt olíufélögum undanþágur á gjöldum sem nema milljörðum króna með því að komast hjá að greiða innviðagjöld né byggingaréttargjöld á reitum sem þau hyggjast byggja á.
Stefán Einar knýr á svör um þetta og fleira í þættinum og þá mun Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra fara yfir landslagið í pólitíkinni bæði hér heima og erlendis.
- Title
- #29. - Lilja og listamannalaunin
- Runtime
- 1:13:32
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Ákvörðun Lilju Daggar Alfreðsdóttur um að hækka fjárframlög til listamannalauna hefur hlotið talsverða gagnrýni undanfarið. Hefur því verið haldið fram að fremur frjálslega sé farið með almannafé í því tilliti og ákvörðunin ekki í takti við rétta forgangsröðun fjárheimilda.
Í þættinum verður margt fleira til umræðu og verður ráðherra gert að svara krefjandi spurningum um stöðu ferðaþjónustunnar, listamannalaunin, ríkisfjármálin, íslenska tungu og annað sem tengist störfum hennar sem ráðherra.
Þau Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, mæta í settið til að fara yfir það helsta sem þótti draga til tíðinda í líðandi viku.
- Title
- #30. - Eldfim áfengisumræða og hrakval í USA
- Runtime
- 1:11:08
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, lögfræðingur og þingmaður Framsóknarflokksins, mætir í þáttinn ásamt Arnari Sigurðssyni eiganda Sante þar sem þau takast á um núgildandi áfengislög. Málaflokkurinn hefur verið í kastljósi eftir að ÁTVR höfðaði mál gegn smásölu áfengis á netinu sem síðar var vísað frá.
Til að fara yfir það sem helst dró til tíðinda í vikunni sem senn er á enda mæta þau Jón Axel Ólafsson, útvarps- og athafnamaður, og Fanney Birna Jónsdóttir, dagskrárstjóri Rásar 1, í settið þar sem fyrstu forsetakappræður Donalds Trump og Joes Biden ber á góma.
- Title
- #34. - Tik Tok eitraðra en filterslaus Camel og ráðaleysi í Valhöll
- Runtime
- 1:21:46
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, og Tryggvi Hjaltason, formaður hugverkaráðs og höfundur nýlegrar skýrslu um stöðu drengja í íslensku menntakerfi, sitja fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála.
Í kjölfar hnífaárásarinnar í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt þar sem ung stúlka týndi lífi sínu og fleiri ungmenni særðust hafa margar spurningar vaknað um hvers konar samfélagsbreytingar eru að eiga sér stað hér á landi.
Í þætti dagsins ræða þeir Grímur og Tryggvi tæpitungulaust um afleiðingar stóraukins vopnaburðar, óöryggi og vanlíðan barna og með hvaða hætti hægt sé að sporna við þessari válegu þróun. Enda um risavaxið mál að ræða sem snertir allt samfélagið í heild.
Píratinn Björn Leví Gunnarsson fer yfir helstu tíðindi í líðandi viku ásamt Teiti Birni Einarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og á ...
- Title
- #33. - Rándýr samgöngusáttmáli og Sjálfstæðisflokkur í sögulegri lægð
- Runtime
- 1:19:29
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Enn er margt á huldu um það hvernig fjármagna skuli borgarlínuna. Til að varpa ljósi á málið mæta Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna í Spursmál.
Líkt og fram hefur komið stefna stjórnvöld á að verja 311 milljörðum króna í samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu fram til ársins 2040. Enn er þess beðið að ljósi verði varpað á hvernig verkefnið verður fjármagnað en ljóst er að nýjar álögur verða að veruleika, gangi fyrirætlanir yfirvalda eftir.
Ný Maskínukönnun sýnir að fylgi Sjálfstæðisflokksins er í frjálsu falli og hefur aldrei í 95 ára sögu hans mælst viðlíka lágt. Á sama tíma fara Miðflokkurinn og Samfylkingin með himinskautum og margt bendir til þess að Sósíalistar muni ná mönnum inn á þing meðan VG sitji eftir með sárt ennið.
Til þe...
- Title
- #32. - Menntakerfi í molum og enn eitt gosið
- Runtime
- 1:16:40
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra mætir í Spursmál til að fara yfir stöðuna í íslensku menntakerfi.
Alþjóðlegir mælikvarðar sýna að íslensk grunnskólabörn standa flestum öðrum börnum á OECD svæðinu langt að baki þegar kemur að lesskilningi, stærðfræðikunnáttu og þekkingu á náttúruvísindum. Staðan hefur versnað hratt allt frá árinu 2009 þegar samræmd próf voru lögð af.
Ásmundur Einar hefur boðað miklar breytingar á menntakerfinu sem hann segir ætlaðar til þess að bæta ástandið. Margir hafa tjáð sig um þessi mál að undanförnu og hart hefur verið tekist á. Í ítarlegu viðtali svarar ráðherrann fyrir ákvarðanir sínar og einnig það hvað valdið hefur því að ekkert Evrópuríki, að Grikklandi undanskildu, kemur verr út í PISA-könnunum en Ísland.
Mikið hefur gengið á í íslensku samfélagi í vikunni og Ã...
- Title
- #.46 - Bjarni svarar fyrir fylgið
- Runtime
- 1:20:47
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Bjarni Benediktsson er gestur Stefáns í þetta skiptið. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur flökkt talsvert síðustu vikur en flokknum hefur reynst erfitt að halda í þann árangur sem kom fram í könnunum í kjölfar þess að stjórninni var slitið.
Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu fer yfir nýja könnun á fylgi flokka.
Þá mæta tveir fréttamenn RÚV í settið til Stefáns Einars og ræða fréttir vikunnar, bæði innlendar og erlendar. Það eru þau Oddur Þórðarson og Urður Örlygsdóttir.
Sneisafullur þáttur af áhugaverðum fréttum og lifandi umræðu um mikilvægustu málefni landsins.
- Title
- #45. - Þjarmað að Ingu og Stefán hlýðir Víði yfir
- Runtime
- 1:42:56
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Inga Sæland formaður Flokks fólksins situr fyrir svörum.
Í síðustu skoðanakönnunum Prósents hefur fylgi flokksins verið í hæstu hæðum en samkvæmt nýjustu könnun mælist hann einungis með þremur prósentustigum lægra fylgi en Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur og mælist nú í 11,2%.
Má því segja að Flokkur fólksins sé á hvínandi siglingu þrátt fyrir að stefnumál flokksins séu enn frekar óljós. Það verður því athyglisvert að fylgjast með hvort breytingar kunni að verða á fylginu þegar stefnuskrá flokksins verður gerð opinber.
Í þættinum verður þjarmað að Ingu og knúið á um svör við því hver helstu áherslumál flokksins verða í þeirri kosningabaráttu sem nú stendur yfir og hvers verður að vænta af Flokki fólksins þegar að myndun nýrrar ríkisstjórnar kemur.
Ásamt Ingu mæta tveir sterkir frambjóðendur í þáttinn til að fara yfir stöðu...
- Title
- #36. - Rugby-rimma, remúlaðislys og umdeildur kjörþokki
- Runtime
- 1:22:25
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins situr fyrir svörum. Fylgi Miðflokksins hefur sjaldan eða aldrei mælst hærra en nýlegar skoðanakannanir gefa sterklega til kynna að fylgi flokksins fari nú með himinskautum en enn er óvíst hvenær til kosninga kemur. Að svo stöddu virðist svo vera að úthald ríkisstjórnarinnar sé sleitulaust þrátt fyrir að gustað hafi um ríkisstjórnarsamstarfið á kjörtímabilinu.
Foringjar stjórnmálaflokkanna hafa nú tekið sér stöðu á vettvangi stjórnmálanna. Enda ekki seinna vænna því innan árs munu landsmenn ganga að kjörborðinu á nýjan leik og velja sér nýja forystu sem kann að hugnast landanum betur.
Lagðar verða ýmsar spurningar fyrir Sigmund Davíð um stjórnarsamstarfið og hvers sé að vænta í pólitíkinni á komandi misserum.
Fjörleg yfirferð á fréttum vikunnar
Mar...
- Title
- #.48 - Sparkað í franska ostagerðamenn
- Runtime
- 1:27:37
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins situr fyrir svörum í leiðtogaspjalli undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar í nýjasta þætti Spursmála.
Flokkur Sigmundar Davíðs hefur verið í sókn að undanförnu og nú hefur hann, líkt og aðrir, kynnt oddvita í hverju kjördæmi ásamt framboðslistum.
Hvert stefni Sigmundur ef niðurstaða kosninga verður með þeim hætti sem kannanir gefa til kynna? Sér hann samstarfsflöt við aðra flokk og hvar er hann reiðubúinn að gefa eftir?
Auk Sigmundar mættu þau Erna Mist Yamagata, listakona og pistlahöfundur, sem situr í 9. sæti á framboðslista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum, í settið til að fara yfir það sem er efst á baugi á hinu pólitíska sviði hérlendis og erlendis.
<...
- Title
- #37. - Spangólandi ráðherra og ósvífinn stjórnandi
- Runtime
- 1:18:12
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála. Auk hans mæta þau Kristín Gunnarsdóttir einn þáttastjórnandi hlaðvarpsins Komið gott og Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri Viljans til að rýna helstu fréttir líðandi viku.
- Title
- #39. - Ríkisstjórnin í andarslitrunum
- Runtime
- 48:12
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
- Title
- #47. - Stóra plan Kristrúnar og fornleifar í stjórnmálunum
- Runtime
- 1:25:41
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Öll spjót standa á Kristrúnu Frostadóttur formanni Samfylkingar en flokkur hennar mælist enn sem fyrr stærstur í öllum skoðanakönnunum.
Kristrún mætir nú í Spursmál og svarar fyrir stefnu flokksins, sem þessar kannanir benda til að muni hljóta framgang að loknum kosningum. Ætlar Kristrún að hækka skatta og ef svo er hvaða skatta? Hverju eiga auðlindagjöld að skila og hvernig lýsir Kristrún hinu svokallaða ehf.-gati sem Samfylkingunni er tíðrætt um.
Þá mæta þau Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur og Þórður Snær Júlíusson blaðamaður. Hún býður sig fram fyrir hönd Framsóknarflokksins og vermir 3. sætið í Suðvesturkjördæmi. Þórður Snær er í Samfylkingunni og situr í 3. sætinu í Reykjavík norður.
Þau fara yfir fréttir vikunnar, m.a. vendingar tengdar Jóni Gunnarssyni og njósnum sem sonur hans hefur orðið fyrir.
- Title
- #40. - Uppgjör í kraganum, ný könnun og Trump á siglingu
- Runtime
- 1:06:32
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Jón Gunnarsson, fyrrverandi ráðherra, mætir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og varaformanni Sjálfstæðisflokksins, í pólitísku einvígi í nýjasta þætti Spursmála. Er þetta í fyrsta sinn sem þau Jón og Þórdís mætast eftir að hún tilkynnti um framboð sitt en bæði ætla þau sér annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Kraganum.
Til að ræða helstu fréttir vikunnar og nýjustu vendingar á vettvangi stjórnmálanna mæta þau Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstri Grænna, og Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, í settið.
Þá fer Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, yfir nýjustu tölur í skoðanakönnun Prósents sem benda til mikillar fylgisbreytingar eftir að upp úr ríkisstjórnarsamstarfinu flosnaði síðustu helgi.
- Title
- #44. - Nauðvörn Svandísar, skattaparadísin og Viðreisn á flugi
- Runtime
- 1:23:05
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Svandís Svavarsdóttir formaður VG mætir Stefáni Einari í hressilegu spjalli um pólitíkina. Í skoðanakönnun Prósents í liðinni viku mældist flokkur Svandísar, Vinstrihreyfingin grænt framboð, með sögulega lágt fylgi. Svo virðist sem brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur sé að draga dilk á eftir sér og hafi áhrif á fylgi flokksins í þeirri kosningabaráttu sem nú stendur yfir. Svandís hyggst nú leggja allt sitt kapp á að auka fylgi flokksins um land allt ásamt sínu fólki og verður spennandi að fylgjast með hvernig til tekst.
Auk hennar mæta þeir Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar í settið og rýna helstu fréttir vikunnar þar sem mest hefur farið fyrir stjórnmálunum.
Þá fer Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, yfir nýjustu tölur úr könnun Prósents í þættinum sem snerta á fylgi fl...
- Title
- #43. - Djúpríkið í klandri, vaxtaþak á bankana og vika í uppgjör í USA
- Runtime
- 1:24:02
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Arnar Þór Jónsson, er formaður hins nýja Lýðræðisflokks. Hann vill fá umboð til þess að umbylta peningamarkaðnum á Íslandi, taka á djúpríkinu og í viðtalinu kynnir hann leiðir til þess að draga úr verðbólgu.
Auk hans eru þær mættar í Hádegismóana, þingkonurnar Þórunn Sveinbjarnardóttir og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Flokkur Þórunnar er á mikilli siglingu og mælist trekk í trekk með 24% fylgi eða meira. Á sama tíma er Framsóknarflokkurinn, flokkur Rannveigar, í kröppum dansi og í sumum könnunum virðist hann á barmi þess að falla út af þingi. Það eru mikil tíðindi fyrir elsta stjórnmálaflokka landsins.
Þær stöllur ræða stöðuna í stjórnmálunum heima og Þórunn fer meðal annars yfir nýlega uppákomu þar sem Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, talaði niður til Dags B. Eggertssonar í tölvupóstsamskiptum við kjósanda.
- Title
- #38. - Viðreisn Jóns, örkin hans Óla og skvettugangur í Móunum
- Runtime
- 1:26:17
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Hvaða áherslumál hyggst Jón Gnarr setja á oddinn í stjórnmálastarfi innan Viðreisnar? Er stefnuskrá flokksins leiðarvísirinn eða hyggst hann fara sínar eigin leiðir. Þetta kemur í ljós í viðtali á vettvangi Spursmála.
Nýverið lýsti Jón því yfir að hann hygðist hasla sér völl í landsmálunum á vettvangi Viðreisnar.
Hann mun taka þátt í prófkjöri og sækjast eftir leiðtogasæti flokksins í Reykjavík. Þar sitja nú á fleti fyrir þær Hanna Katrín Friðriksson og Þorbjörg Gunnlaugsdóttir. Sú fyrrnefnda í Reykjavík suður og hin í norður.
Líkt og undanfarnar vikur hafa mörg stórtíðindi rekið önnur á fréttavettvangi. Til þess að ræða þau mál mæta þau Áslaug Hulda Jónsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og fyrrum bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ og sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson, sóknarprestur í Seljakir...
- Title
- #49. - Hægri eða vinstri Viðreisn og splunkunýr metill
- Runtime
- 1:28:28
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gæti staðið með pálmann í höndunum að loknum kosningum ef þær fara eins og kannanir benda nú til. Vill hún vinstri- eða hægristjórn?
Á vettvang Spursmála mæta einnig stjórnmálafræðiprófessorinn Eiríkur Bergmann Einarsson og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson, doktorsnemi í tölfræði við Háskóla Íslands. Hann heldur úti vefsíðunni www.metill.is þar sem gefin er út kosningaspá, byggð á nýjustu könnunum á fylgi flokkanna.
- Title
- #41. - Sanna tekur slaginn fyrir sósíalismann og folar í framboði
- Runtime
- 1:11:58
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi og leiðtogi Sósíalistaflokks Íslands í komandi þingkosningum, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála.
AUk hennar mæta þingframbjóðendurnir Snorri Másson, sem sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík, og Guðmundur Ari Sigurjónsson, sem að öllu óbreyttu mun skipa annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
Vegna komandi þingkosninga þann 30. nóvember verða tveir þættir af Spursmálum í hverri viku fram að kosningum, á þriðjudögum og föstudögum.
Meðal annars verður rætt við formenn flokkanna og hina ýmsu oddvita.
- Title
- #42. - Píratar sýna á spilin og hrókeringar á hægri vængnum
- Runtime
- 1:16:17
- Date posted
- 1 year ago
- Description
- Leiðtogaviðtölin halda áfram og að þessu sinni er gestur Spursmála Lenya Rún Taha Karim, sem vann frækinn sigur í prófkjöri Pírata í Reykjavík þar sem hún skaut reynslumiklum sitjandi þingmönnum aftur fyrir sig.
Í viðtalinu er rætt við Lenyu um stefnu Pírata í málum sem tengjast heilbrigðisþjónustu, skattheimtu, stöðu útlendinga og hælisleitenda og margt fleira.
Áður en að því kemur mæta þeir Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins og Brynjar Níelsson, fyrrum alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á vettvang og ræða stöðuna í stjórnmálunum og glóðheitar tölur úr nýjustu könnun Prósents. Það er könnun sem unnin er fyrir Morgunblaðið og mbl.is.
- Title
- #49. - Hægri eða vinstri Viðreisn og splunkunýr metill
- Runtime
- 1:28:28
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gæti staðið með pálmann í höndunum að loknum kosningum ef þær fara eins og kannanir benda nú til. Vill hún vinstri- eða hægristjórn?
Á vettvang Spursmála mæta einnig stjórnmálafræðiprófessorinn Eiríkur Bergmann Einarsson og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson, doktorsnemi í tölfræði við Háskóla Íslands. Hann heldur úti vefsíðunni www.metill.is þar sem gefin er út kosningaspá, byggð á nýjustu könnunum á fylgi flokkanna.
- Title
- #.48 - Sparkað í franska ostagerðamenn
- Runtime
- 1:27:37
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins situr fyrir svörum í leiðtogaspjalli undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar í nýjasta þætti Spursmála.
Flokkur Sigmundar Davíðs hefur verið í sókn að undanförnu og nú hefur hann, líkt og aðrir, kynnt oddvita í hverju kjördæmi ásamt framboðslistum.
Hvert stefni Sigmundur ef niðurstaða kosninga verður með þeim hætti sem kannanir gefa til kynna? Sér hann samstarfsflöt við aðra flokk og hvar er hann reiðubúinn að gefa eftir?
Auk Sigmundar mættu þau Erna Mist Yamagata, listakona og pistlahöfundur, sem situr í 9. sæti á framboðslista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum, í settið til að fara yfir það sem er efst á baugi á hin...
- Title
- #47. - Stóra plan Kristrúnar og fornleifar í stjórnmálunum
- Runtime
- 1:25:41
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Öll spjót standa á Kristrúnu Frostadóttur formanni Samfylkingar en flokkur hennar mælist enn sem fyrr stærstur í öllum skoðanakönnunum.
Kristrún mætir nú í Spursmál og svarar fyrir stefnu flokksins, sem þessar kannanir benda til að muni hljóta framgang að loknum kosningum. Ætlar Kristrún að hækka skatta og ef svo er hvaða skatta? Hverju eiga auðlindagjöld að skila og hvernig lýsir Kristrún hinu svokallaða ehf.-gati sem Samfylkingunni er tíðrætt um.
Þá mæta þau Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur og Þórður Snær Júlíusson blaðamaður. Hún býður sig fram fyrir hönd Framsóknarflokksins og vermir 3. sætið í Suðvesturkjördæmi. Þórður Snær er í Samfylkingunni og situr í 3. sætinu í Reykjavík norður.
Þau fara yfir fréttir vikunnar, m.a. vendingar tengdar Jóni Gunn...
- Title
- #.46 - Bjarni í kröppum dansi og svarar fyrir fylgið
- Runtime
- 1:20:47
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Bjarni Benediktsson er gestur Stefáns í þetta skiptið. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur flökkt talsvert síðustu vikur en flokknum hefur reynst erfitt að halda í þann árangur sem kom fram í könnunum í kjölfar þess að stjórninni var slitið.
Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu fer yfir nýja könnun á fylgi flokka.
Þá mæta tveir fréttamenn RÚV í settið til Stefáns Einars og ræða fréttir vikunnar, bæði innlendar og erlendar. Það eru þau Oddur Þórðarson og Urður Örlygsdóttir.
Sneisafullur þáttur af áhugaverðum fréttum og lifandi umræðu um mikilvægustu málefni landsins.
- Title
- #45. - Þjarmað að Ingu og Stefán hlýðir Víði yfir
- Runtime
- 1:42:56
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Inga Sæland formaður Flokks fólksins situr fyrir svörum.
Í síðustu skoðanakönnunum Prósents hefur fylgi flokksins verið í hæstu hæðum en samkvæmt nýjustu könnun mælist hann einungis með þremur prósentustigum lægra fylgi en Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur og mælist nú í 11,2%.
Má því segja að Flokkur fólksins sé á hvínandi siglingu þrátt fyrir að stefnumál flokksins séu enn frekar óljós. Það verður því athyglisvert að fylgjast með hvort breytingar kunni að verða á fylginu þegar stefnuskrá flokksins verður gerð opinber.
Í þættinum verður þjarmað að Ingu og knúið á um svör við því hver helstu áherslumál flokksins verða í þeirri kosningabaráttu sem nú stendur yfir og hvers verður að vænta af Flokki fólksins þegar að myndun nýrrar ríkisstjórnar kemur.
Ásamt Ingu mæta tvei...
- Title
- #44. - Nauðvörn Svandísar, skattaparadísin og Viðreisn á flugi
- Runtime
- 1:23:05
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Svandís Svavarsdóttir formaður VG mætir Stefáni Einari í hressilegu spjalli um pólitíkina. Í skoðanakönnun Prósents í liðinni viku mældist flokkur Svandísar, Vinstrihreyfingin grænt framboð, með sögulega lágt fylgi. Svo virðist sem brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur sé að draga dilk á eftir sér og hafi áhrif á fylgi flokksins í þeirri kosningabaráttu sem nú stendur yfir. Svandís hyggst nú leggja allt sitt kapp á að auka fylgi flokksins um land allt ásamt sínu fólki og verður spennandi að fylgjast með hvernig til tekst.
Auk hennar mæta þeir Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar í settið og rýna helstu fréttir vikunnar þar sem mest hefur farið fyrir stjórnmálunum. Þá fer Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, y...
- Title
- Grindavik seen from Hagafell
- Runtime
- 5:01:12
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Livestream looking in the direction of the current volcano hotspot going on in Iceland.
Our other Livestreams from the Volcano Eruption :
Sandhóll - Close up: https://youtube.com/live/utN3ai6vNPY
Sandhóll - Wide: https://youtube.com/live/LTDAd9BCJ1k
Þorbjorn - Close up: https://youtube.com/live/k6LgRBuNNns
Þorbjorn - Wide: https://youtube.com/live/7WaoiIyxS0w
Grindavík - Hagafell: This Stream
Hagafell - Close Up: https://youtube.com/live/D0uXVrAPweo
Svartsengi Power Plant: https://youtube.com/live/qF_Hfb-ObLQ
Views from Perlan in Reykjavík, Iceland: https://youtube.com/live/UGHgKAgVYqU
- Title
- Grindavik seen from Hagafell
- Runtime
- 4:51:56
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Title
- #43. - Djúpríkið í klandri, vaxtaþak á bankana og vika í uppgjör í USA
- Runtime
- 1:23:47
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Arnar Þór Jónsson, er formaður hins nýja Lýðræðisflokks. Hann vill fá umboð til þess að umbylta peningamarkaðnum á Íslandi, taka á djúpríkinu og í viðtalinu kynnir hann leiðir til þess að draga úr verðbólgu.
Auk hans eru þær mættar í Hádegismóana, þingkonurnar Þórunn Sveinbjarnardóttir og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Flokkur Þórunnar er á mikilli siglingu og mælist trekk í trekk með 24% fylgi eða meira. Á sama tíma er Framsóknarflokkurinn, flokkur Rannveigar, í kröppum dansi og í sumum könnunum virðist hann á barmi þess að falla út af þingi. Það eru mikil tíðindi fyrir elsta stjórnmálaflokka landsins.
Þær stöllur ræða stöðuna í stjórnmálunum heima og Þórunn fer meðal annars yfir nýlega uppákomu þar sem Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, talaði n...
- Title
- #42. - Píratar sýna á spilin og hrókeringar á hægri vængnum
- Runtime
- 1:16:17
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Leiðtogaviðtölin halda áfram og að þessu sinni er gestur Spursmála Lenya Rún Taha Karim, sem vann frækinn sigur í prófkjöri Pírata í Reykjavík þar sem hún skaut reynslumiklum sitjandi þingmönnum aftur fyrir sig.
Í viðtalinu er rætt við Lenyu um stefnu Pírata í málum sem tengjast heilbrigðisþjónustu, skattheimtu, stöðu útlendinga og hælisleitenda og margt fleira.
Áður en að því kemur mæta þeir Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins og Brynjar Níelsson, fyrrum alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á vettvang og ræða stöðuna í stjórnmálunum og glóðheitar tölur úr nýjustu könnun Prósents. Það er könnun sem unnin er fyrir Morgunblaðið og mbl.is.
- Title
- #41. - Sanna tekur slaginn fyrir sósíalismann og folar í framboði
- Runtime
- 1:11:58
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi og leiðtogi Sósíalistaflokks Íslands í komandi þingkosningum, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála.
AUk hennar mæta þingframbjóðendurnir Snorri Másson, sem sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík, og Guðmundur Ari Sigurjónsson, sem að öllu óbreyttu mun skipa annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
Vegna komandi þingkosninga þann 30. nóvember verða tveir þættir af Spursmálum í hverri viku fram að kosningum, á þriðjudögum og föstudögum.
Meðal annars verður rætt við formenn flokkanna og hina ýmsu oddvita.
- Title
- #40 Uppgjör í kraganum, ný könnun og Trump á siglingu
- Runtime
- 1:06:32
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Jón Gunnarsson, fyrrverandi ráðherra, mætir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og varaformanni Sjálfstæðisflokksins, í pólitísku einvígi í nýjasta þætti Spursmála. Er þetta í fyrsta sinn sem þau Jón og Þórdís mætast eftir að hún tilkynnti um framboð sitt en bæði ætla þau sér annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Kraganum.
Til að ræða helstu fréttir vikunnar og nýjustu vendingar á vettvangi stjórnmálanna mæta þau Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstri Grænna, og Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, í settið.
Þá fer Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, yfir nýjustu tölur í skoðanakönnun Prósents sem benda til mikillar fylgisbreytingar eftÂ...
- Title
- #39. - Ríkisstjórnin í andarslitrunum
- Runtime
- 48:12
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
- Title
- #38. - Viðreisn Jóns, örkin hans Óla og skvettugangur í Móunum
- Runtime
- 1:26:17
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Hvaða áherslumál hyggst Jón Gnarr setja á oddinn í stjórnmálastarfi innan Viðreisnar? Er stefnuskrá flokksins leiðarvísirinn eða hyggst hann fara sínar eigin leiðir. Þetta kemur í ljós í viðtali á vettvangi Spursmála.
Nýverið lýsti Jón því yfir að hann hygðist hasla sér völl í landsmálunum á vettvangi Viðreisnar.
Hann mun taka þátt í prófkjöri og sækjast eftir leiðtogasæti flokksins í Reykjavík. Þar sitja nú á fleti fyrir þær Hanna Katrín Friðriksson og Þorbjörg Gunnlaugsdóttir. Sú fyrrnefnda í Reykjavík suður og hin í norður.
Líkt og undanfarnar vikur hafa mörg stórtíðindi rekið önnur á fréttavettvangi. Til þess að ræða þau mál mæta þau Áslaug Hulda Jónsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og fyrrum bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ og sr. Ólafur JóÂ...
- Title
- #37. - Spangólandi ráðherra og ósvífinn stjórnandi
- Runtime
- 1:18:12
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála. Auk hans mæta þau Kristín Gunnarsdóttir einn þáttastjórnandi hlaðvarpsins Komið gott og Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri Viljans til að rýna helstu fréttir líðandi viku.
- Title
- #36. - Rugby-rimma, remúlaðislys og umdeildur kjörþokki
- Runtime
- 1:22:25
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins situr fyrir svörum. Fylgi Miðflokksins hefur sjaldan eða aldrei mælst hærra en nýlegar skoðanakannanir gefa sterklega til kynna að fylgi flokksins fari nú með himinskautum en enn er óvíst hvenær til kosninga kemur. Að svo stöddu virðist svo vera að úthald ríkisstjórnarinnar sé sleitulaust þrátt fyrir að gustað hafi um ríkisstjórnarsamstarfið á kjörtímabilinu.
Foringjar stjórnmálaflokkanna hafa nú tekið sér stöðu á vettvangi stjórnmálanna. Enda ekki seinna vænna því innan árs munu landsmenn ganga að kjörborðinu á nýjan leik og velja sér nýja forystu sem kann að hugnast landanum betur.
Lagðar verða ýmsar spurningar fyrir Sigmund Davíð um stjórnarsamstarfið og hvers sé að vænta í pólitíkinni á komandi misserum.
Fjörleg yf...
- Title
- #35. - Misheppnuð mótmæli og sjávarútvegurinn pakkar í vörn
- Runtime
- 1:12:00
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála. Lagabreytingatillögur Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra hafa að undanförnu hlotið mikla gagnrýni af hálfu forsvarsmanna SFS og verður Heiðrún Lind meðal annars krafin svara um rétt og sanngjörn afgjöld fyrir sjávarauðlindina við strendur Íslands.
Þau Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, mæta einnig í settið og rýna í það sem helst bar á góma í fréttum líðandi viku; setningu þingsins, stefnuræðu forsætisráðherra, mótmæli launafólks á Austurvelli og margt fleira.
- Title
- #34. - Tik Tok eitraðra en filterslaus Camel og ráðaleysi í Valhöll
- Runtime
- 1:21:46
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, og Tryggvi Hjaltason, formaður hugverkaráðs og höfundur nýlegrar skýrslu um stöðu drengja í íslensku menntakerfi, sitja fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála.
Í kjölfar hnífaárásarinnar í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt þar sem ung stúlka týndi lífi sínu og fleiri ungmenni særðust hafa margar spurningar vaknað um hvers konar samfélagsbreytingar eru að eiga sér stað hér á landi.
Í þætti dagsins ræða þeir Grímur og Tryggvi tæpitungulaust um afleiðingar stóraukins vopnaburðar, óöryggi og vanlíðan barna og með hvaða hætti hægt sé að sporna við þessari válegu þróun. Enda um risavaxið mál að ræða sem snertir allt samfélagið í heild.
Píratinn Björn Leví Gunnarsson fer yfir helstu tíðindi í líðandi viku ásamt ...
- Title
- #33. - Rándýr samgöngusáttmáli og Sjálfstæðisflokkur í sögulegri lægð
- Runtime
- 1:19:29
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Enn er margt á huldu um það hvernig fjármagna skuli borgarlínuna. Til að varpa ljósi á málið mæta Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna í Spursmál.
Líkt og fram hefur komið stefna stjórnvöld á að verja 311 milljörðum króna í samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu fram til ársins 2040. Enn er þess beðið að ljósi verði varpað á hvernig verkefnið verður fjármagnað en ljóst er að nýjar álögur verða að veruleika, gangi fyrirætlanir yfirvalda eftir.
Ný Maskínukönnun sýnir að fylgi Sjálfstæðisflokksins er í frjálsu falli og hefur aldrei í 95 ára sögu hans mælst viðlíka lágt. Á sama tíma fara Miðflokkurinn og Samfylkingin með himinskautum og margt bendir til þess að Sósíalistar muni ná mönnum inn á þing meðan VG sitji ef...
- Title
- #32. - Menntakerfi í molum og enn eitt gosið
- Runtime
- 1:16:40
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra mætir í Spursmál til að fara yfir stöðuna í íslensku menntakerfi.
Alþjóðlegir mælikvarðar sýna að íslensk grunnskólabörn standa flestum öðrum börnum á OECD svæðinu langt að baki þegar kemur að lesskilningi, stærðfræðikunnáttu og þekkingu á náttúruvísindum. Staðan hefur versnað hratt allt frá árinu 2009 þegar samræmd próf voru lögð af.
Ásmundur Einar hefur boðað miklar breytingar á menntakerfinu sem hann segir ætlaðar til þess að bæta ástandið. Margir hafa tjáð sig um þessi mál að undanförnu og hart hefur verið tekist á. Í ítarlegu viðtali svarar ráðherrann fyrir ákvarðanir sínar og einnig það hvað valdið hefur því að ekkert Evrópuríki, að Grikklandi undanskildu, kemur verr út í PISA-könnunum en Ísland.
Mikið hefu...
- Title
- Views from Perlan in Reykjavík, Iceland
- Runtime
- 7:11
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Livestream looking in the direction of the current volcano eruption going on in Iceland.
Our other Livestreams from the Volcano Eruption :
Sandhóll - Close up: https://youtube.com/live/y2vjVxAQ7NA
Sandhóll - Wide: https://youtube.com/live/Hcg_zYoTMNU
Þorbjorn - Close up: https://youtube.com/live/I5JBPyrjmaE
Þorbjorn - Wide: https://youtube.com/live/AlT9bF4fxn0
Hagafell: https://youtube.com/live/FZmN2daZW9g
Multiviewer: https://youtube.com/live/i7AAvFDpUqY
Svartsengi: https://youtube.com/live/piXjzantaTo
Grindavík, varnargarðar: https://youtube.com/live/I_wRajP-7bg
Litli-Hrútur Vestur: https://youtube.com/live/XlwC7b6hNKo
Litli-Hrútur: https://youtube.com/live/Fg1pqhnn2ts
Views from Perlan in Reykjavík, Iceland: This stream
- Title
- #31. - Ónýtur lúxusleikskóli og orlof borgarstjóra
- Runtime
- 1:14:51
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Í þættinum situr Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur fyrir svörum. Kastljósinu er beint að íbúðauppbyggingu í borginni, vandaræðagangi með leikskólahúsnæði og biðlista eftir plássum sem honum hlýst. Þá er Einar einnig spurður út í nýjar upplýsingar um himinháar orlofsgreiðslur sem fráfarandi borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, fékk í vasa sinn vegna ónýttra orlofsdaga áratug aftur í tímann.
Að auki mæta þau Sigríður Á. Andersen, fyrrum dómsmálaráðherra og Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi, til leiks og ræða fréttir vikunnar og það helsta sem borið hefur til tíðinda á liðnu sumri. Spjallið er líflegt enda eru þau Sigríður og Stefán á sitthvorum enda hins pólitíska litrófs.
- Title
- #30. - Eldfim áfengisumræða og hrakval í USA
- Runtime
- 1:11:08
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, lögfræðingur og þingmaður Framsóknarflokksins, mætir í þáttinn ásamt Arnari Sigurðssyni eiganda Sante þar sem þau takast á um núgildandi áfengislög. Málaflokkurinn hefur verið í kastljósi eftir að ÁTVR höfðaði mál gegn smásölu áfengis á netinu sem síðar var vísað frá.
Til að fara yfir það sem helst dró til tíðinda í vikunni sem senn er á enda mæta þau Jón Axel Ólafsson, útvarps- og athafnamaður, og Fanney Birna Jónsdóttir, dagskrárstjóri Rásar 1, í settið þar sem fyrstu forsetakappræður Donalds Trump og Joes Biden ber á góma.
- Title
- Stórfyrirtæki mögulega á förum
- Runtime
- 55:47
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Siglfirska líftæknifyrirtækið Genís er metið á 23 milljarða króna, sé miðaðvið verðmat í tengslum við 1,1 milljarðs króna hlutafjáraukningu sem ráðist var í fyrir skemmstu. Róbert
Guðfinnsson stofnandi fyrirtækisins fer með 70% hlut í félaginu og er hann samkvæmt þessu metinn á 16 milljarða króna. Róbert segir að stefnumörkun á komandi mánuðum muni leiða í ljós hvort félagið eigi sér framtíð á Siglufirði eða annars staðar. Vonbrigði séu fólgin í því að sveitarfélagið hafi ekki ráðist í uppbyggingu í samfélaginu sem samkomulag náðist um fyrir 12 árum. Í þeim samningi skuldbatt Róbert sig til þess að fjárfesta myndarlega í samfélaginu, m.a. með hóteluppbyggingu og innspýtingu í uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Róbert er viðmælandi Stefáns Einars Stefánssonar í Dagmálum.
- Title
- #29. - Lilja og listamannalaunin
- Runtime
- 1:13:32
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Ákvörðun Lilju Daggar Alfreðsdóttur um að hækka fjárframlög til listamannalauna hefur hlotið talsverða gagnrýni undanfarið. Hefur því verið haldið fram að fremur frjálslega sé farið með almannafé í því tilliti og ákvörðunin ekki í takti við rétta forgangsröðun fjárheimilda.
Í þættinum verður margt fleira til umræðu og verður ráðherra gert að svara krefjandi spurningum um stöðu ferðaþjónustunnar, listamannalaunin, ríkisfjármálin, íslenska tungu og annað sem tengist störfum hennar sem ráðherra. Þau Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, mæta í settið til að fara yfir það helsta sem þótti draga til tíðinda í líðandi viku.
- Title
- #28. - Dagur svarar fyrir bensínstöðvarlóðirnar
- Runtime
- 1:15:37
- Date posted
- 2 years ago
- Description
- Dagur B. Eggertsson hefur setið undir töluverðri gagnrýni að undanförnu fyrir embættisfærslur í borgarstjóratíð sinni.
Því hefur verið haldið fram að Reykjavíkurborg hafi veitt olíufélögum undanþágur á gjöldum sem nema milljörðum króna með því að komast hjá að greiða innviðagjöld né byggingaréttargjöld á reitum sem þau hyggjast byggja á.
Stefán Einar knýr á svör um þetta og fleira í þættinum og þá mun Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra fara yfir landslagið í pólitíkinni bæði hér heima og erlendis.
- Title
- 27. - Bjarni á pólitísku jarðsprengjusvæði?