mbl.is
#128. - Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum
- Title
- #128. - Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum
- Runtime
- 1:35:07
- Date posted
- 2 days ago
- Description
- Í Spursmálum vikunnar fara þingmennirnir Jón Gnarr og Snorri Másson yfir lok þingvetrarins og takast á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar greinir þá á um hvort verið sé að „kíkja í pakkann“ eða veita stjórnvöldum opið umboð til að sækja um aðild.
Þá er rætt um Þingvelli, vel heppnaða tónleika Kaleo og þjóðargrafreitinn þar sem hugsanleg rannsókn á beinum Jónasar Hallgrímssonar vekur spurningar um sögu, virðingu og helgi.
Í lok þáttarins ræðir Sævar Þór Sveinsson, sérfræðingur í fjármálum íþrótta og maðurinn á bak við Utanvallar.is, um gríðarlegt umfang heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, tekjur FIFA, hækkandi miðaverð og hvað HM-sæti hefði þýtt fjárhagslega fyrir íslenska knattspyrnu.
- Title
- #127. - Myndi matvælaverð lækka eða hækka við ESB-aðild?
- Runtime
- 1:21:54
- Date posted
- 9 days ago
- Description
- Ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið á lofti um að matvælaverð muni lækka ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það muni lækka um allt að fjórðung.
Hvað er satt og logið í því? Þeirri spurningu munu þær Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni reyna að svara á vettvangi Spursmála í dag.Þá munu hagfræðingarnir Birta Karen Tryggvadóttir og Þórður Gunnarsson rýna í nýja fjármálaáætlun ríkisins. Birta Karen birti fyrr í vikunni grein þar sem hún gagnrýnir vinnubrögð fjármálaráðherra og Alþingis þar sem fjármálaáætlun til ársins 2031 var samþykkt án þess að tillit væri tekið til nýrrar hagspár Seðlabanka Íslands sem gerir ráð fyrir talsvert verri horfum á komandi árum og misserum en áður var gert.
- Title
- #127. - Myndi matvælaverð lækka eða hækka við ESB-aðild?
- Runtime
- 1:21:54
- Date posted
- 9 days ago
- Description
- Ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið á lofti um að matvælaverð muni lækka ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það muni lækka um allt að fjórðung.
Hvað er satt og logið í því? Þeirri spurningu munu þær Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni reyna að svara á vettvangi Spursmála í dag.
Þá munu hagfræðingarnir Birta Karen Tryggvadóttir og Þórður Gunnarsson rýna í nýja fjármálaáætlun ríkisins. Birta Karen birti fyrr í vikunni grein þar sem hún gagnrýnir vinnubrögð fjármálaráðherra og Alþingis þar sem fjármálaáætlun til ársins 2031 var samþykkt án þess að tillit væri tekið til nýrrar hagspár Seðlabanka Íslands sem gerir ráð fyrir talsvert verri horfum á komandi árum og misserum en áður var gert.
- Title
- #126. - Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands?
- Runtime
- 1:47:03
- Date posted
- 16 days ago
- Description
- Jón Helgi Egilsson er doktor í peningamálahagfræði. Hann segir að upptaka evru gæti leitt hundruða milljarða króna tjón yfir íslenskt efnahagslíf ef atvinnuleysi myndi aukast vegna gjaldmiðilsins.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegu viðtali við Jón Helga í Spursmálum þennan föstudaginn. Bendir hann á að sú fastgengisstefna sem óhjákvæmilega myndi fylgja upptöku evru gæti leitt til aukins atvinnuleysis í kjölfar efnahagsáfalla.Jón Helgi hefur ritað tvær greinar í Morgunblaðið að undanförnu þar sem hann ræðir gjaldmiðlamál. Þar hefur hann meðal annars gagnrýnt stjórnvöld fyrir að rangtúlka niðurstöður skýrslu sem fjármála- og efnahagsráðherra lét gera á kostum þess að taka upp evru. Bendir hann á að í skýrslunni hafi auk þess ekkert mat verið lagt á það hvaða áhrif upptöku gætu haft á atvinnustig í landinu.
Þá mætir einnig í Spursmál Jón Bjarnason...

Þá mætir einnig í Spursmál Jón Bjarnason sem var ráðherra sjávar...
- Title
- #125. - Áslaug kveður, ESB-sumarið hefst
- Runtime
- 1:58:04
- Date posted
- 23 days ago
- Description
- Í Spursmálum vikunnar er farið yfir pólitíska jarðskjálfta síðustu daga, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur úr stjórnmálum og það sem kann að bíða hennar handan þingsalarins. Þá hefst heit umræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, enda virðist íslenska sumarið ekki eiga að fara í sól, sund og pylsur heldur gjaldmiðlamál, fullveldi og skýrslur.
Hermann Nökkvi Gunnarsson og Hlédís Maren Guðmundsdóttir fara yfir fréttir vikunnar, þar á meðal stöðu Miðflokksins eftir kosningar, fánamál í Reykjavík, útlendingamál í Reykjanesbæ, Icelandair, Oculis og umræðuna um íslenska fánann. Þá ræðir Áslaug Arna ákvörðun sína og framtíðina, áður en Lilja Alfreðsdóttir og Dagbjört Hákonardóttir takast hressilega á um ESB, krónuna, EES-samninginn og stöðu Íslands í breyttum heimi.

- Bókaspjall: Þorskastríðin með Guðna Th. Jóhannessyni
- Runtime
- 1:24:29
- Date posted
- 24 days ago
- Description
- Í þættinum ræðir Stefán Einar Stefánsson við Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðiprófessor og fyrrverandi forseta Íslands, um bók hans Stund milli stríða: Saga landhelgismálsins 1961 til 1971.
Rætt er um Þorskastríðin, átökin við Breta, togvíraklippur, NATO-vopnið, hleranir, alþjóðalög og þá flóknu sögu sem mótaði sjálfsmynd Íslendinga sem strandþjóðar.
Guðni segir frá lykilatvikum, persónum og pólitískum átökum tímabilsins og veltir fyrir sér hvernig sagan lifir áfram í samtímanum, meðal annars í umræðu um fullveldi, auðlindir og samband Íslands við Evrópu.

- #124. - Guðrún vs. Sigmundur og blikur á lofti
- Runtime
- 1:48:09
- Date posted
- 1 month ago
- Description
- Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp sveitarstjórnarkosningarnar og fara yfir yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst.
Þá mætir til leiks Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka en hann ritaði grein í Morgunblaðið í morgun sem nefnist Maður mjólkar ekki dauða kú. Hann hefur verulegar áhyggjur af stöðu Icelandair sem hann segir mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í Covid-faraldrinum og þekkir því vel til á vettvangi. Hvað er til ráða? Er hætt við því að Íslendingar missi úr höndunum þessa lífæð milli landsins og meginlandanna í austri og vestri?
Í lok þáttarins ræðir Stefán Einar við þau Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá St...

Í lok þáttarins ræðir Stefán Einar við þau Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð og ...
- Title
- #123. - Er kreppuverðbólga að skella á landinu?
- Runtime
- 1:33:01
- Date posted
- 1 month ago
- Description
- Sveitarstjórnarkosningarnar, efnahagshorfur og áhrif stýrivaxta á heimili og fyrirtæki eru meðal þess sem tekið er fyrir í Spursmálum í dag.Þar fara þau Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi og fyrrverandi ráðherra, yfir helstu fréttir vikunnar og rýna í niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna.Í síðari hluta þáttarins ræða þau Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi, um stöðu efnahagsmála hér á landi, stýrivaxaákvörðun Seðlabanka Íslands og horfur á næstu misserum.
- Title
- #123. - Er kreppuverðbólga að skella á landinu?
- Runtime
- 1:33:01
- Date posted
- 1 month ago
- Description
- Sveitarstjórnarkosningarnar, efnahagshorfur og áhrif stýrivaxta á heimili og fyrirtæki eru meðal þess sem tekið er fyrir í Spursmálum í dag.
Þar fara þau Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi og fyrrverandi ráðherra, yfir helstu fréttir vikunnar og rýna í niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna.
Í síðari hluta þáttarins ræða þau Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi, um stöðu efnahagsmála hér á landi, stýrivaxaákvörðun Seðlabanka Íslands og horfur á næstu misserum.
- Title
- X26 - Reykjavík: oddvitar berjast um borgina
- Runtime
- 2:00:22
- Date posted
- 1 month ago
- Description
- Oddvitar stærstu framboðanna í Reykjavík tókust á um meirihlutamyndun, rekstur borgarinnar, samgöngur, húsnæðismál og skóla í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is. Mikill hiti var í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is þegar oddvitar sex stærstu framboðanna í Reykjavík mættust í Hádegismóum á lokametrum kosningabaráttunnar.
Þar sátu fyrir svörum Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, Björg, oddviti Viðreisnar, Ari, oddviti Miðflokksins, Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins.
- Title
- X26 - Reykjavík: Baráttuframboðin takast á
- Runtime
- 1:28:03
- Date posted
- 1 month ago
- Description
- Oddvitar fimm framboða sem berjast um sæti í borgarstjórn Reykjavíkur tókust á um rekstur borgarinnar, húsnæðismál, samgöngur, leikskóla og Evrópusambandið í fyrri hluta oddvitakappræðna Morgunblaðsins og mbl.is fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardag.
Þátttakendur voru Ingimar Þór Friðriksson fyrir Góðan daginn framboðið, Guðmundur Ingi Þóroddsson fyrir Flokk fólksins, Sigfús Aðalsteinsson fyrir Okkar borg, Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalistaflokkinn og Kristinn Jón Ólafsson fyrir Pírata.
- Title
- Bókaspjall: Frelsið eftir Mill með Hannesi Hólmsteini
- Runtime
- 1:10:00
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Frelsi, nytjastefna, málfrelsi og staða hugmynda í samtímanum voru til umræðu þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, ræddi við Stefán Einar Stefánsson í Bókaklúbbi Spursmála um bókina Frelsið eftir John Stuart Mill.
- Title
- X26 - Kópavogur: Oddvitaslagur
- Runtime
- 1:32:34
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Fjármál Kópavogsbæjar, Kópavogsmódelið í leikskólamálum og samgöngusáttmálinn eru á meðal helstu átakapunkta í Kópavogi. Oddvitar fimm stærstu framboðanna í Kópavogi takast á í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum.
Orri Vignir Hlöðversson, oddviti Framsóknarflokksins, María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar, og Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins takast á um stóru málin en þeir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýra umræðunum.
- Title
- X26 - Hafnarfjörður: oddvitaslagur
- Runtime
- 1:13:40
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Oddvitar framboðsflokkanna í Hafnarfirði mætast í myndveri Morgunblaðsins og mbl.is og fara yfir stóru málin þar í bæ.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýra umræðunum og spyrja oddvitaefnin spjörunum úr um þau málefni sem helst brenna á bæjarbúum og þeirra sýn á næsta kjörtímabil komist þeir til valda.
Sex framboð bjóða fram í Hafnarfirði.
Í kappræðunum mætast þau Valdimar Víðisson, bæjarstjóri og oddviti Framsóknar, Karólína Helga Símonardóttir fyrir Viðreisn, Orri Björnsson fyrir Sjálfstæðisflokk, Einar Geir Þorsteinsson fyrir Miðflokk, Guðmundur Árni Stefánsson fyrir Samfylkingu og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir fyrir Vinstrið.
- Title
- X26 - Reykjanesbær: vaxtaverkir bæjarfélagsins
- Runtime
- 1:14:22
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Oddvitar framboða í Reykjanesbæ eru sammála um að bærinn hafi vaxið of hratt á undanförnum árum. Mikill vöxtur, uppbygging innviða, húsnæðismál, atvinnuþróun, málefni hælisleitenda og framtíð Þróunarfélagsins Kadeco voru meðal helstu umræðuefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is.
Í kappræðunum mættu Arnar Páll Guðmundsson fyrir Viðreisn, Guðný Birna Guðmundsdóttir fyrir Samfylkinguna, Vilhjálmur Árnason fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Rúnar Fossadal Árnason fyrir Miðflokkinn og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn.
Í upphafi voru frambjóðendur spurðir hvort Reykjanesbær hefði stækkað of hratt. Allir svöruðu því játandi. Fram kom að íbúum bæjarins hefur fjölgað um 64% frá árinu 2014 og að um 35% íbúa eru af erlendum uppruna.
- Title
- X26 - Árborg: oddvitar mætast
- Runtime
- 1:25:25
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Oddvitar fjögurra framboða í Árborg takast á í myndveri Morgunblaðsins. Fjármál sveitarfélagsins, álögur á íbúa og fyrirtæki, uppbygging innviða, leikskólamál, atvinnuþróun og framtíð byggðanna við ströndina eru á dagskrá.
Matthías Bjarnason Framsóknarflokki, Heiðrún Kristmundsdóttir frá Viðreisn, Sigurjón Vídalín Samfylkingu og bæjarstjórinn Bragi Bjarnason fyrir Sjálfstæðisflokk mætast en þær Andrea Sigurðardóttir og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir stýra umræðunum.
- Title
- X26 - Garðabær: ólíkar áherslur oddvita
- Runtime
- 1:23:38
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Skiptar skoðanir eru meðal oddvita í Garðabæ um Borgarlínu, uppbyggingu, fasteignagjöld og mögulegt samstarf eftir kosningar. Þetta kemur fram í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is þar sem frambjóðendur sex lista í Garðabæ tókust á um stöðu bæjarins og næstu verkefni.
Í kappræðunum mættu Kjartan Atli Kjartansson fyrir Samfylkinguna, Hlynur Bæringsson fyrir Framsókn, Guðlaugur Kristmundsson fyrir Viðreisn, Almarr Guðmundsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Lárus Guðmundsson fyrir Miðflokkinn og Þorbjörg Þorvaldsdóttir fyrir Garðabæjarlistann.
Garðabær hefur verið eitt ört vaxandi sveitarfélag landsins á undanförnum árum og voru frambjóðendur spurðir hvort bærinn hefði vaxið of hratt. Lárus Guðmundsson svaraði því játandi en aðrir frambjóðendur töldu svo ekki vera.
- Title
- #122. - Mun ríkisstjórnin koma atkvæðagreiðslunni í gegn?
- Runtime
- 1:27:06
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Meirihlutinn á Alþingi hefur sléttar þrjár vikur til að koma ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB í gegnum þingið. Takist það ekki 29. maí eða fyrr getur ekki orðið af henni í lok ágúst. Þessa dagana er hart tekist á um málið, ekki síst á vettvangi utanríkismálanefndar þingsins.
Pawel Bartoszek er formaður nefndarinnar en í henni situr einnig Diljá Mist Einarsdóttir. Þau eru gestir Spursmála að þessu sinni og ræða málið frá ýmsum hliðum. Ljóst er að stór gjá er á milli meirihluta og minnihluta í þinginu um málið.
Áður en þau mæta til leiks fara þau Andrés Magnússon og Andrea Sigurðardóttir yfir stöðuna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Mun kreditkortanotkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur hafa áhrif á fylgi Samfylkingarinnar og mun Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi standa af sér árásir Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra.

- Ak CityX26 - Akureyri: heitt í kolunum á borgarafundi
- Runtime
- 1:20:19
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Atvinnumál, Norðurorka, sjókvíaeldi í Eyjafirði, málefni eldri borgara og möguleg sameining sveitarfélaga voru meðal helstu umræðuefna á fjölmennum borgarafundi Morgunblaðsins á Akureyri í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Meðal annars var hart tekist á um Norðurorku, sjókvíaeldi og framtíð Akureyrar.
Fundurinn fór fram á Græna hattinum þar sem þétt var setið. Sex oddvitaframbjóðendur tóku þátt í umræðunum: Sunna Hlín Jóhannesdóttir fyrir Framsóknarflokkinn, Sindri S. Kristjánsson fyrir Samfylkinguna, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir fyrir Vinstri græn, Berglind Ósk Guðmundsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Óðinn Svan Óðinsson fyrir L-lista Bæjarlista Akureyrar og Hlynur Jóhannsson fyrir Miðflokkinn.
- Title
- X26 - Seltjarnarnes: oddvitar takast á
- Runtime
- 1:03:14
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Leikskólamál, fjármál bæjarins, samgöngusáttmálinn og framtíðaruppbygging á Seltjarnarnesi voru meðal helstu ágreiningsefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí.
Þátttakendur voru Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Kristinn Ólafsson, oddviti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra, og Skafti Harðarson, oddviti Miðflokksins og annarra.
Seltjarnarnes er eitt minnsta sveitarfélag landsins að flatarmáli en þar búa um 4.600 manns. Þótt frambjóðendur væru sammála um að bærinn væri eftirsóknarverður til búsetu kom skýrt fram að tekist er á um rekstur, forgangsröðun og framtíðarsýn.
- Title
- X26 - Borgarbyggð: kappræður oddvita
- Runtime
- 55:36
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Uppbygging, fjármál sveitarfélagsins og grunnþjónusta voru í forgrunni í oddvitakappræðum Borgarbyggðar í Hádegismóum.
Þar leiddu saman hesta sína Hermann Valsson fyrir Borgarbyggðarlistann, Davíð Sigurðsson fyrir Framsóknarflokkinn, Þórður Brynjarsson fyrir Miðflokkinn og Sigurður Guðmundsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Borgarbyggð gengur nú til kosninga sem sameinað sveitarfélag með Skorradalshreppi. Um 4.200 íbúar búa í sveitarfélaginu sem er víðfeðmt og fjölbreytt.
Í kappræðunum kom fram almenn samstaða um að halda þurfi áfram uppbyggingu, fjölga íbúum, styrkja atvinnulíf og tryggja góða grunnþjónustu. Ágreiningur snerist fremur um forgangsröðun og einstök mál, meðal annars Brákarey og vindorku.
- Title
- X26 - Mosfellsbær: oddvitar mætast
- Runtime
- 1:25:11
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Það stefnir í spennandi kosningar í Mosfellsbæ en Mosfellingar þurfa nú að gera upp hug sinn milli sex framboða fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Í síðustu kosningum voru framboðin sjö, en Vinstrihreyfingin – grænt framboð býður ekki fram í bæjarfélaginu að þessu sinni.
Oft er talað um Mosfellsbæ, sem er á norðaustanverðum jaðri höfuðborgarsvæðisins, sem sveit í borg vegna nálægðar bæjarfélagsins við náttúruna. Enginn skortur er því á byggingarlandi í bæjarfélaginu en óhætt er að segja að uppbygging á Blikastaðalandi hafi verið í brennidepli að undanförnu og er fyrirhuguð uppbygging þar síður en svo óumdeild.
Þeir Sævar Birgisson oddviti Framsóknar, Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokks, Michele Rebora, sem skipar þriðja sæti á lista Vina Mosfellsbæjar, Ólafur Ingi Óskarsson oddviti Samfylkingarinnar, Gylfi Þór Þorsteinsson oddviti Viðr...
- Title
- X26 - Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli á Ísafirði
- Runtime
- 1:44:03
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Skólamál, húsnæðisuppbygging og samgöngur voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is í Ísafjarðarbæ vegna sveitarstjórnarkosninganna. Fimm oddvitar framboðanna í bænum komu þar saman og kynntu áherslur sínar fyrir komandi kjörtímabil.
Frambjóðendur voru almennt sammála um að sveitarfélagið stæði frammi fyrir miklum vaxtarverkefnum, ekki síst í skólamálum, þar sem bæði leik- og grunnskólar væru undir þrýstingi. Einnig var rætt um skort á lóðum, þörf fyrir frekari íbúðauppbyggingu og mikilvægi þess að bæta tengsl milli Ísafjarðar og annarra byggðakjarna sveitarfélagsins.
Samgöngumál komu einnig mikið við sögu, sérstaklega staða flugs til Ísafjarðar og þörfin fyrir betri vegasamgöngur. Þá var rætt um stjórnsýslu sveitarfélagsins, fasteignagjöld, Airbnb og mögulegt meirihlutasamstarf að kosningum loknum.
Framboðin sendu oddvita sína til leiks í Edinborgarhúsinu. ...
- Title
- X26 - Grindavík: oddvitakappræður
- Runtime
- 54:01
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Endurreisn Grindavíkur var í forgrunni í oddvitakappræðum sem fram fóru í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí.
Þar komu saman þrír oddvitar, þau Magnús M. Guðmundsson fyrir Miðflokkinn, Guðbjörg Eyjólfsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Ásrún Helga Kristinsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn.
Ljóst var frá upphafi að eitt mál yfirskyggði allt annað: hvernig byggja eigi samfélagið upp á ný eftir hamfarir síðustu ára.
- Title
- X26 - Akranes: kappræður oddvita
- Runtime
- 1:06:57
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Mikil uppbygging, skuldsetning, leikskólar, atvinnumál og framtíð hafnarsvæðisins voru meðal þess sem tekist var á um í oddvitakappræðum á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Fimm framboð taka þátt í kosningunum og ljóst að áherslurnar eru víða svipaðar þótt leiðirnar séu ólíkar. Mannkynið hefur sem sagt enn ekki fundið leið til að ræða gatnaviðhald án þess að það verði hálfgerður heimspekifundur um framtíð samfélagsins.
Þátttakendur voru Líf Lárusdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk, Ragnar Baldvin Sæmundsson fyrir Framsókn og frjálsa, Jón Guðni Guðmundsson fyrir Viðreisn, Sigurður Vopni Vatnsdal fyrir Samfylkingu og Hrafn Ágúst Björnsson fyrir Miðflokkinn.
- Title
- X-26 - Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar á fjölmennum borgarafundi
- Runtime
- 1:21:34
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Mikill áhugi virðist vera á sveitarstjórnarkosningunum í Fjarðabyggð ef marka má mætinguna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is þar sem oddvitar fjögurra framboða tókust á um rekstur sveitarfélagsins, atvinnuuppbyggingu, samgöngur og þjónustu við íbúa. Fundurinn einkenndist af tiltölulega góðum tóni þrátt fyrir skýran ágreining um áherslur og framtíðarsýn.
Á sviðinu voru Ragnar Sigurðsson fyrir Sjálfstæðisflokk, Stefán Þór Eysteinsson fyrir Samfylkingu og annað félagshyggjufólk, Þuríður Lilly Sigurðardóttir fyrir Framsóknarflokk og Hrafn Bjarnason fyrir Miðflokk.
- Title
- #121. - Gæti eldgos í Eyjum sett jarðgangagerð í uppnám?
- Runtime
- 1:14:31
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Í Spursmálum dagsins verður öllum helstu spurningum svarað um það hvort mögulegt sé að bora 18 kílómetra göng milli lands og Eyja. Þá verður rætt við nýja oddvitaframbjóðendur í Garðabæ og Reykjavík.
Þannig mæta þau til leiks, Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Munu þau ræða fréttir vikunnar sem eru af ýmsu og ólíku tagi.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing og Árna Sigfússon, stjórnarformann Eyjaganga, um hugmyndina að göngum milli lands og Eyja.

- #120. - Fallinn varaformaður og vaxtaokur í boði hins opinbera
- Runtime
- 1:16:39
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Varaformaður Flokks fólksins er flúinn af hólmi og Seðlabanki og ríkisstjórn virðast leggja sitt af mörkum til þess að viðhalda háum vöxtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Spursmálum dagsins. Í fyrsta hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Andrés Magnússon um gögn sem nú hafa verið dregin fram í dagsljósið og varpa ljósi á það hvaða augum Evrópusambandið lítur áframhald viðræðna við Ísland um mögulega aðild þess að sambandinu.Í öðrum hluta þáttarins er rætt við þá Hlyn Bæringsson, oddvita Framsóknarflokksins í Garðabæ og Tómas Þór Þórðarson, varaþingmann Sjálfstæðisflokksins um fréttir vikunnar. þar ber margt forvitnilegt á góma, meðal annars hækkandi verðbólgu, yfirvofandi stýrivaxtahækkanir, brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins og stöðuna í efstu deild í körfunni og fótboltanum.Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Kjartan Örn Sigurðsson, eiganda Ormsson...
- Title
- Fallinn varaformaður og vaxtaokur í boði hins opinbera
- Runtime
- 1:16:39
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Varaformaður Flokks fólksins er flúinn af hólmi og Seðlabanki og ríkisstjórn virðast leggja sitt af mörkum til þess að viðhalda háum vöxtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Spursmálum dagsins.
Í fyrsta hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Andrés Magnússon um gögn sem nú hafa verið dregin fram í dagsljósið og varpa ljósi á það hvaða augum Evrópusambandið lítur áframhald viðræðna við Ísland um mögulega aðild þess að sambandinu.
Í öðrum hluta þáttarins er rætt við þá Hlyn Bæringsson, oddvita Framsóknarflokksins í Garðabæ og Tómas Þór Þórðarson, varaþingmann Sjálfstæðisflokksins um fréttir vikunnar. þar ber margt forvitnilegt á góma, meðal annars hækkandi verðbólgu, yfirvofandi stýrivaxtahækkanir, brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins og stöðuna í efstu deild í körfunni og fótboltanum.
Í síðasta hluta þáttarins er rætt við...
- Title
- X26 - Samgöngur og vatnsöryggi stóru hitamálin
- Runtime
- 1:35:21
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Samgöngumál, vatnsöryggi, skipulag og þjónusta við íbúa voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is sem haldinn var í Vestmannaeyjum í gærkvöld í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga.
Þar tókust á Sæunn Magnúsdóttir fyrir Miðflokkinn, Eyþór Harðarson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Arndís María Kjartansdóttir fyrir Eyjalistann og kynntu áherslur sínar í líflegum umræðum fyrir fullum sal af fólki.
- Title
- Bókakvöld: Grænland í brennidepli
- Runtime
- 1:20:34
- Date posted
- 2 months ago
- Description
- Samtal við Heiðar Guðjónsson, Eld Ólafsson og Ragnar Axelsson um stöðu Grænlands.
- Title
- #119. - Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB?
- Runtime
- 1:34:26
- Date posted
- 3 months ago
- Description
- Á Ísland, sem eitt ríkasta land í heimi, erindi inn í Evrópusambandið þar sem mörg ríki glíma við fátækt og efnahagserfiðleika? Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra hefur skoðun á því.
Hann er væntanlegur í Spursmál í dag til þess að ræða þetta áleitna mál en hann verður einnig til svars um það hvernig alþjóðamálin í víðara samhengi blasa við honum. Hann var um nokkurra ára skeið sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum í Washington D.C. og er því öllum hnútum kunnugur þegar kemur að stöðu og stefnu Bandaríkjanna, jafnt heima fyrir og um veröld víða.
Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Sævar Helga Bragason, jarðfræðingur og umsjónarmaður Stjörnuvefsins með meiru, og Herbert Guðmundsson tónlistarmann. Rætt verður við þá um geimskot, fráfall Björgvins Halldórssonar og margt fleira.
Í þáttinn mætir ein...

Í þáttinn mætir einnig Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra Morgunbla...
- Title
- #118. - Eldfim umræða um Hamas-liða á Íslandi
- Runtime
- 1:35:27
- Date posted
- 3 months ago
- Description
- Allt ætlaði um koll að keyra í kjölfar þess að Morgunblaðið upplýsti að menn með tengsl við Hamas-samtökin hefðu staðið að voðaverki í bílakjallara í Reykjavík.
Lögreglan hefur orðið tvísaga um málið en nú virðist óhætt að upplýsa um þjóðerni mannanna sem nú sæta rannsókn vegna afar hættulegrar líkamsárásar sem átti sér stað á Höfðatorgi í Reykjavík.
Þetta og fleira er til umræðu á vettvangi Spursmála.
Alþingismennirnir Bergþór Ólason frá Miðflokki og Grímur Grímsson frá Viðreisn ræða málið á vettvangi Spursmála. Almenningur spyr sig út í hvort öryggi fólks sé ógnað vegna uppgangs erlendra glæpagengja hér á landi. Grímur er fyrrverandi yfirlögregluþjónn og þekkir vel til málaflokksins.
Þeir ræða einnig stöðuna í efnahagslífi landsins en ný verðbólgumæling sýnir að ekki hefur tekist að ná böndum á v...
- Title
- #118. - Eldfim umræða um Hamas-liða á Íslandi
- Runtime
- 1:35:27
- Date posted
- 3 months ago
- Description
- Allt ætlaði um koll að keyra í kjölfar þess að Morgunblaðið upplýsti að menn með tengsl við Hamas-samtökin hefðu staðið að voðaverki í bílakjallara í Reykjavík.
Lögreglan hefur orðið tvísaga um málið en nú virðist óhætt að upplýsa um þjóðerni mannanna sem nú sæta rannsókn vegna afar hættulegrar líkamsárásar sem átti sér stað á Höfðatorgi í Reykjavík.
Þetta og fleira er til umræðu á vettvangi Spursmála.
Alþingismennirnir Bergþór Ólason frá Miðflokki og Grímur Grímsson frá Viðreisn ræða málið á vettvangi Spursmála. Almenningur spyr sig út í hvort öryggi fólks sé ógnað vegna uppgangs erlendra glæpagengja hér á landi. Grímur er fyrrverandi yfirlögregluþjónn og þekkir vel til málaflokksins.
Þeir ræða einnig stöðuna í efnahagslífi landsins en ný verðbólgumæling sýnir að ekki hefur tekist að ná böndum á verðhækkanir hér á landi. Mælist hún 5,4% samkvæmt...
- Title
- #117. - Flest teikn í hagkerfinu vísa í verri átt
- Runtime
- 1:36:51
- Date posted
- 3 months ago
- Description
- Mjög gefur á bátinn í íslensku hagkerfi um þessar mundir og fátt sem gefur sérstaka ástæðu til bjartsýni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir sýnir ekki á nein spil um hvernig bregðast skuli við.Þau Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, og Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fara yfir nýja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentur. Minnihluti nefndarinnar vildi raunar hækka þá um 0,5 próse Einnig fara þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson og fara yfir fréttir vikunnar. Þeir stýra hlaðvarpinu Korter í kosningar og af þeirri ástæðu augljóslega mun umræðan að miklu leyti hverfast um kosningarnar sem framundan eru 16. maí næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema í stærðfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur smíðað tvær afar áhugaverðar heim...
- Title
- #117. - Flest teikn í hagkerfinu vísa í verri átt
- Runtime
- 1:36:51
- Date posted
- 3 months ago
- Description
- Mjög gefur á bátinn í íslensku hagkerfi um þessar mundir og fátt sem gefur sérstaka ástæðu til bjartsýni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir sýnir ekki á nein spil um hvernig bregðast skuli við.
Þau Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, og Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fara yfir nýja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentur. Minnihluti nefndarinnar vildi raunar hækka þá um 0,5 próse
Einnig fara þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson og fara yfir fréttir vikunnar. Þeir stýra hlaðvarpinu Korter í kosningar og af þeirri ástæðu augljóslega mun umræðan að miklu leyti hverfast um kosningarnar sem framundan eru 16. maí næstkomandi.
Í lok þáttar er rætt við Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema í stærðfræði við Háskóla Íslands. Hann hef...
- Title
- #116. - Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB
- Runtime
- 2:08:22
- Date posted
- 4 months ago
- Description
- Mikið uppbrot á fjölmiðlamarkaði er í farvatninu eftir að tilkynnt var um kaup Símans á Vísi og útvarpsstöðum Sýnar. Þá berast fylkingar á banaspjótum út af spurningunni um aðildarviðræður við ESB.
Þessi mál verða tekin fyrir í fréttum vikunnar í Spursmálum þar sem Heiða Kristín Helgadóttir, nýráðinn ráðgjafi utanríkisráðherra, og Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans og stjórnandi hlaðvarpsins Komið gott, leiða saman hesta sína.
Þá mætir Gauti Geirsson á svæðið en hann er framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækisins Háafells við Ísafjarðardjúp. Fyrirtæki hans beinir tæknibúnaði sem helst hefur orðið vart við í Star Wars í baráttunni við hina skæðu laxalús sem bæði herjar á eldislax og villtan.
Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Gísla Ragnar Guðmundsson sem leiðir samnorræna stofnun um gervigreind...
- Title
- #116. - Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB
- Runtime
- 2:08:22
- Date posted
- 4 months ago
- Description
- Mikið uppbrot á fjölmiðlamarkaði er í farvatninu eftir að tilkynnt var um kaup Símans á Vísi og útvarpsstöðum Sýnar. Þá berast fylkingar á banaspjótum út af spurningunni um aðildarviðræður við ESB.
Þessi mál verða tekin fyrir í fréttum vikunnar í Spursmálum þar sem Heiða Kristín Helgadóttir, nýráðinn ráðgjafi utanríkisráðherra, og Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans og stjórnandi hlaðvarpsins Komið gott, leiða saman hesta sína.
Þá mætir Gauti Geirsson á svæðið en hann er framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækisins Háafells við Ísafjarðardjúp. Fyrirtæki hans beinir tæknibúnaði sem helst hefur orðið vart við í Star Wars í baráttunni við hina skæðu laxalús sem bæði herjar á eldislax og villtan.
Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Gísla Ragnar Guðmundsson sem leiðir samnorræna stofnun um gervigreind. Hann er flestum ef ...
- Title
- #115. - Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið?
- Runtime
- 1:23:28
- Date posted
- 4 months ago
- Description
- Að 173 dögum liðnum liggur fyrir hvort Ísland hefji aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið? Hvaða sjónarmið munu liggja til grundvallar þegar þjóðin ákveður hvort leggja skuli út í þá vegferð?
Það er stóra spurningin sem varpað var fram í opinberri umræðu síðastliðinn föstudag þegar forystukonur ríkisstjórnarinnar boðuðu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið en hún mun fara fram 29. ágúst, verði þingsályktunartillaga þar um samþykkt á Alþingi.
Góðir gestir
Fyrst mæta þeir á vettvang, Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins.
Þá leiða saman hesta sína Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar þingsins, og Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður hans.

- #114. - Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson
- Runtime
- 1:42:17
- Date posted
- 4 months ago
- Description
- Í byrjun mánaðarins tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann mætir í fyrsta ítarlega viðtalið í kjölfar þess á vettvangi Spursmála.
Í upphafi verður hann spurður út í kynni sín af Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóra Morgunblaðsins, sem féll frá um liðna helgi. Þeir áttu lengi samfylgd, fyrst í þinginu en síðan á þjóðarsviðinu þar sem Bjarni leiddi flokkinn sem Davíð hafði stýrt á árunum 1991-2005.
Viðkvæm staða efnahagsmála
Þá verður talinu beint að stöðu efnahagsmála en þar hefur syrt verulega í álinn á síðustu mánuðum og vaxtasleggjan sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hafði lofað að beita þjóðinni til handa hefur alls ekki virkað.
Hvernig standa atvinnuvegirnir og eru sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki í núvera...
- Title
- #114 Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson
- Runtime
- 1:42:17
- Date posted
- 4 months ago
- Description
- Í byrjun mánaðarins tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann mætir í fyrsta ítarlega viðtalið í kjölfar þess á vettvangi Spursmála.
Í upphafi verður hann spurður út í kynni sín af Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóra Morgunblaðsins, sem féll frá um liðna helgi. Þeir áttu lengi samfylgd, fyrst í þinginu en síðan á þjóðarsviðinu þar sem Bjarni leiddi flokkinn sem Davíð hafði stýrt á árunum 1991-2005.
Viðkvæm staða efnahagsmála
Þá verður talinu beint að stöðu efnahagsmála en þar hefur syrt verulega í álinn á síðustu mánuðum og vaxtasleggjan sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hafði lofað að beita þjóðinni til handa hefur alls ekki virkað.
Hvernig standa atvinnuvegirnir og eru sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki í núverandi ástandi?
Hvað finnst Bjar...
- Title
- #113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af?
- Runtime
- 1:57:33
- Date posted
- 4 months ago
- Description
- Rósa Björk Brynjólfsdóttir vill verða formaður VG en flokkurinn er í mikilli kreppu eftir að hafa dottið út af þingi og misst ríkisstyrki. Kosið verður um nýjan formann í flokknum um miðjan næsta mánuð.
Icelandair býr við mjög íþyngjandi umhverfisskattheimtu og ljóst að ef hennar nyti ekki við hefði fyrirtækið skilað umtalsverðum hagnaði á síðasta ári.
Rósa Björk mætir í Spursmál og ræðir fréttir vikunnar ásamt Eyþóri Arnalds, fyrrum borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þau ræða stríðið í Úkraínu, ESB-umsókn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og margt fleira af vettvangi stjórnmálanna.
Flugfélag í kreppu
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir stöðu flugfélagsins, ekki síst í ljósi hinnar miklu skattheimtu sem að mati margra skekkir samkeppnisstöðu íslensks flugrekstrar mjög gagnvart evrópskum og bandarískum flugfélögum.