mbl.is
113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af?
- Title
- 113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af?
- Runtime
- 1:57:33
- Date posted
- 7 months ago
- Description
- Rósa Björk Brynjólfsdóttir vill verða formaður VG en flokkurinn er í mikilli kreppu eftir að hafa dottið út af þingi og misst ríkisstyrki. Kosið verður um nýjan formann í flokknum um miðjan næsta mánuð.
Icelandair býr við mjög íþyngjandi umhverfisskattheimtu og ljóst að ef hennar nyti ekki við hefði fyrirtækið skilað umtalsverðum hagnaði á síðasta ári.
Rósa Björk mætir í Spursmál og ræðir fréttir vikunnar ásamt Eyþóri Arnalds, fyrrum borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þau ræða stríðið í Úkraínu, ESB-umsókn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og margt fleira af vettvangi stjórnmálanna.
Flugfélag í kreppu
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir stöðu flugfélagsins, ekki síst í ljósi hinnar miklu skattheimtu sem að mati margra skekkir samkeppnisstöðu íslensks flugrekstrar mjög gagnvart evrópsk...
- Title
- #113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af?
- Runtime
- 1:57:33
- Date posted
- 7 months ago
- Description
- Rósa Björk Brynjólfsdóttir vill verða formaður VG en flokkurinn er í mikilli kreppu eftir að hafa dottið út af þingi og misst ríkisstyrki. Kosið verður um nýjan formann í flokknum um miðjan næsta mánuð.
Icelandair býr við mjög íþyngjandi umhverfisskattheimtu og ljóst að ef hennar nyti ekki við hefði fyrirtækið skilað umtalsverðum hagnaði á síðasta ári.
Rósa Björk mætir í Spursmál og ræðir fréttir vikunnar ásamt Eyþóri Arnalds, fyrrum borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þau ræða stríðið í Úkraínu, ESB-umsókn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og margt fleira af vettvangi stjórnmálanna.
Flugfélag í kreppu
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir stöðu flugfélagsins, ekki síst í ljósi hinnar miklu skattheimtu sem að mati margra skekkir samkeppnisstöðu íslensks flugrekstrar mjög gagnvart evrópskum og bandarískum flugfélögum.
- Title
- #112. - Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn?
- Runtime
- 1:39:09
- Date posted
- 8 months ago
- Description
- Jafnt og þétt leggst losunarkerfið ETS með þyngri hætti á íslenskt viðskiptalíf. Innan fárra ára mun kostnaður Icelandair við kerfið margfaldast. Hvaða áhrif mun það hafa?
Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum dagsins en Frosti Sigurjónsson, höfundur bókarinnar Hitamál og Ragnar S. Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða ETS-kerfið og hugmyndafræðina á bak við það í þættinum.
Rýnt í fréttir vikunnar
Í fréttum vikunnar er rætt við þau Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, stærsta stéttarfélags Landsins, og Frosta Logason, stjórnanda Brotkastsins.
Þar ber margt á góma, málefni Andrésar Mountbatten, fyrrum prins og bróður Karls III Bretakonungs, ný ályktun ASÍ um erfiða stöðu í efnahagsmálum þjóðarinnar og framganga dr. Arnars Eggerts Thoroddsen í kennslustund í Háskóla Íslands þar sem hann spurði unga nemendur hv...
- Title
- #112. - Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn?
- Runtime
- 1:39:09
- Date posted
- 8 months ago
- Description
- Jafnt og þétt leggst losunarkerfið ETS með þyngri hætti á íslenskt viðskiptalíf. Innan fárra ára mun kostnaður Icelandair við kerfið margfaldast. Hvaða áhrif mun það hafa?
Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum dagsins en Frosti Sigurjónsson, höfundur bókarinnar Hitamál og Ragnar S. Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða ETS-kerfið og hugmyndafræðina á bak við það í þættinum.
Rýnt í fréttir vikunnar
Í fréttum vikunnar er rætt við þau Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, stærsta stéttarfélags Landsins, og Frosta Logason, stjórnanda Brotkastsins.
Þar ber margt á góma, málefni Andrésar Mountbatten, fyrrum prins og bróður Karls III Bretakonungs, ný ályktun ASÍ um erfiða stöðu í efnahagsmálum þjóðarinnar og framganga dr. Arnars Eggerts Thoroddsen í kennslustund í Háskóla Íslands þar sem hann spurði unga nemendur hvort þeir hygðust ekki ábyggilega „...
- Title
- #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin?
- Runtime
- 2:11:32
- Date posted
- 8 months ago
- Description
- Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst verðbólgumarkmiði sem er 2,5%.
Hversu hátt geta vextirnir farið?
Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi?
Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breyti...
- Title
- #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin?
- Runtime
- 2:11:31
- Date posted
- 8 months ago
- Description
- Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst svokölluðu verðbólgumarkmiði sem er 2,5%.
Hversu hátt geta vextirnir farið?
Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi?
Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breytingar kallar Konráð G...
- Title
- #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn
- Runtime
- 48:39
- Date posted
- 8 months ago
- Description
- Í morgun var tilkynnt að Ari Edwald myndi leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann segir með því skilið við Sjálfstæðisflokkinn sem hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir síðustu áratugi.
Hann er gestur í aukaþætti af Spursmálum kl. 14.00 í dag. Þátturinn var sendur út í beinni útsendingu frá ritstjórn Morgunblaðsins í Hádegismóum.

- #109. - Er ríkisstjórnin að missa stjórn á hagkerfinu?
- Runtime
- 1:36:02
- Date posted
- 8 months ago
- Description
- Allt virðist stefna í mjög hraða kólnun hagkerfisins á sama tíma og verðbólga eykst hratt. Hætt er við að ríkisstjórnin missi stjórn á kerfinu við slíkar aðstæður og háir vextir verði viðvarandi.
Þessi staða verður til umræðu í Spursmálum í dag. Þar mæta til leiks Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi og hagfræðingur og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi sem lengi hefur tjáð sig um stöðu efnahagsmála hér á landi.
Til þess að fara yfir fréttir vikunnar ætla þær að leiða saman hesta sína borgarfulltrúarnir Magnea Gná Jóhannsdóttir og Líf Magneudóttir. Þær sækjast báðar eftir endurkjöri í komandi kosningum og í flokkum þeirra beggja stefnir einnig í formannsskipti á allra næstu vikum.
Hver er líklegri til þess að verða næsti formaður Framsóknar, Lilja D. Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen? Og hver mun taka við keflinu af Sva...
- Title
- #109. - Er ríkisstjórnin að missa stjórn á hagkerfinu?
- Runtime
- 1:36:02
- Date posted
- 8 months ago
- Description
- Allt virðist stefna í mjög hraða kólnun hagkerfisins á sama tíma og verðbólga eykst hratt. Hætt er við að ríkisstjórnin missi stjórn á kerfinu við slíkar aðstæður og háir vextir verði viðvarandi.
Þessi staða verður til umræðu í Spursmálum í dag. Þar mæta til leiks Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi og hagfræðingur og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi sem lengi hefur tjáð sig um stöðu efnahagsmála hér á landi.
Til þess að fara yfir fréttir vikunnar ætla þær að leiða saman hesta sína borgarfulltrúarnir Magnea Gná Jóhannsdóttir og Líf Magneudóttir. Þær sækjast báðar eftir endurkjöri í komandi kosningum og í flokkum þeirra beggja stefnir einnig í formannsskipti á allra næstu vikum.
Hver er líklegri til þess að verða næsti formaður Framsóknar, Lilja D. Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen? Og hver mun taka við keflinu af Svandísi Svavarsdóttur sem æðstráðandi ...
- Title
- Bókaspjall - Æviminningar Karls Sigurbjörnssonar
- Runtime
- 58:04
- Date posted
- 8 months ago
- Description
- Fyrir jól kom út sjálfsævisaga Karls Sigurbjörnssonar biskups, „Skrifað í sand, minningabrot“. Hann lést árið 2024 en skildi eftir sig handrit að endurminningunum. Bókin var til umfjöllunar í bókaklúbbi Spursmála í janúar. Viðmælandi er séra Hreinn Hákonarson, fyrrverandi fangaprestur, sóknarprestur og ritstjóri Kirkjublaðsins, sem er sjálfstæður fjölmiðill um málefni kirkju ogtrúar.
- Title
- #108. - Eru kjarasamningar í uppnámi?
- Runtime
- 1:34:13
- Date posted
- 8 months ago
- Description
- Verðbólgan er á mikilli siglingu og gæti að öllu óbreyttu sett stærstu kjarasamningana á vinnumarkaði í uppnám í haust. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bregst við nýjustu tíðindum af hagkerfinu í Spursmálum. Það gerir hún ásamt Þórði Pálssyni, forstöðumanni fjárfestinga hjá Sjóvá.
Þá ræða þau stöðuna í pólitíkinni, Hilmar Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Mosfellings og oddvitaframbjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, og Ólöf Skaftadóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins.
Í þættinum ræðir Stefán Einar einnig við Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu en hann fylgir landsliðinu okkar eftir í Danmörku þar sem það mætir heimamönnum í æsispennandi leik í kvöld.

- #107. - Baráttan um völdin hafin
- Runtime
- 54:20
- Date posted
- 9 months ago
- Description
- Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varformaður hans, takast á um formannsstólinn í flokknum.
Flokksþing fram undan
Þann 15. febrúar næstkomandi verður nýr formaður kjörinn á flokksþingi Framsóknarflokksins en Sigurður Ingi Jóhannsson, sem verið hefur formaður frá því í október 2016 gaf það út fyrr í vetur að hann hygðist söðla um og láta af embætti.
Hann tók við formennskunni á róstursömum tíma í íslenskum stjórnmálum þegar hann sigraði sitjandi formann flokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson með ríflega 52% atkvæða. Í kjölfarið klauf Sigmundur Davíð flokkinn og stofnaði Miðflokkinn.
En hvert hyggjast þær Ingibjörg og Lilja taka Framsóknarflokkinn, fái þær umboð til þess að leiða hann næstu árin?
Svara við þeirri spurningu og mörgum öðrum verður leitað Ã...

Svara við þeirri spurningu og mörgum öðrum verður leitað í lifandi og hispurslausri umræðu á vettvangi Spursmála.
- Title
- #106. - Harðir slagir framundan
- Runtime
- 2:05:32
- Date posted
- 9 months ago
- Description
- Vegna spennandi leiks Íslands og Króatíu í handknattleik karla, sem fram fer í Malmö klukkan 14:30 í dag hefur útsendingartími Spursmála verið fluttur til klukkan 12:00 í dag.Gestir þáttarins eru margir og áhugaverðir. Fyrst mæta til leiks þau Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og uppistandarinn og vínspekúlantinn Dóri DNA. Fara þau yfir fréttir vikunnar.
Þá ræðir Stefán Einar við oddvitaframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, þá Ásgeir Elvar Garðarsson, Unnar Stefán Sigurðsson og Vilhjálm Árnason. Prófkjör flokksins fer fram laugardaginn 31. janúar næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðing í utanríkis- og varnarmálum. Þar verður meðal annars fjallað um mögulegar aðildarviðræður Íslands að ESB, bægslagang Donalds Trump gagnvart Grænlandi og sitthvað fleira.
- Title
- #106. - Harðir slagir framundan
- Runtime
- 2:05:32
- Date posted
- 9 months ago
- Description
- Vegna spennandi leiks Íslands og Króatíu í handknattleik karla, sem fram fer í Malmö klukkan 14:30 í dag hefur útsendingartími Spursmála verið fluttur til klukkan 12:00 í dag.
Gestir þáttarins eru margir og áhugaverðir. Fyrst mæta til leiks þau Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og uppistandarinn og vínspekúlantinn Dóri DNA. Fara þau yfir fréttir vikunnar.
Þá ræðir Stefán Einar við oddvitaframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, þá Ásgeir Elvar Garðarsson, Unnar Stefán Sigurðsson og Vilhjálm Árnason. Prófkjör flokksins fer fram laugardaginn 31. janúar næstkomandi.
Í lok þáttar er rætt við Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðing í utanríkis- og varnarmálum. Þar verður meðal annars fjallað um mögulegar aðildarviðræður Íslands að ESB, bægslagang Donalds Trump gagnvart Grænlandi og sitthvað fleira.
- Title
- #105. - Vændiskaup, verðbólguskot og einkunnagjöf í skólum
- Runtime
- 1:27:18
- Date posted
- 9 months ago
- Description
- Mikil fréttavika er að baki sem náði hápunkti í morgun þegar Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar sagði af sér vegna gamalla ódrýgðra synda.
Til að ræða fréttir vikunnar á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn mæta þau Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við þrjá oddvitaframbjóðendur Viðreisnar í Reykjavík um áherslur þeirra, komist þau til valda að afloknum kosningum 16. maí næstkomandi.
Þar fara þau Róbert Ragnarsson, Aðalsteinn Leifsson og Björg Magnúsdóttir.

- Bókaspjall - Íslandsklukkan með Loga Einars
- Runtime
- 1:07:49
- Date posted
- 9 months ago
- Description
- Íslandsklukka Halldórs Laxness er eitt helsta stórvirki nóbelskáldsins. Bókin var tekin fyrir í desembermánuði í bókaklúbbnum og í kjölfarið settist Logi Einarsson menntamálaráðherra niður ásamt Stefáni Einari til að ræða efni og inntak bókarinnar í víðu samhengi. Ekki síst hvaða skírskotun hún hefur inn í nútímann.
- Title
- #104. - Evrópubrölt gegn öryggishagsmunum Íslands
- Runtime
- 1:36:56
- Date posted
- 9 months ago
- Description
- Ef Ísland hyggst undirrita varnarsamning við Evrópusambandið verður að líta til þess að það hefur ekki yfir herstjórn að ráða. Þetta bendir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra á. Hann er gestur fyrsta þáttar Spursmála á nýju ári. Þar ræðir hann stórtíðindi af alþjóðasviðinu þar sem Bandaríkjamenn hafa lýst vesturhvel jarðar sem yfirráðasvæði sitt og auk þess gripið til aðgerða til þess að tryggja það.
Aðild kann að veikja stöðu okkar
Í þættinum ræðir Björn fyrirætlanir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að sækja um aðild að Evrópusambandinu en hann telur að aukin áhersla á það að leita undir verndarvæng ESB kunni að veikja stöðu okkar gagnvart Bandaríkjunum sem tryggt hafa varnir landsins í yfir 80 ár.
Einnig er rætt um stöðuna í stjórnmálunum hér heima fyrir þar sem ráðherrakapall setur svip sinn...
- Title
- #104. - #104. - Evrópubrölt gegn öryggishagsmunum Íslands
- Runtime
- 1:36:56
- Date posted
- 9 months ago
- Description
- Ef Ísland hyggst undirrita varnarsamning við Evrópusambandið verður að líta til þess að það hefur ekki yfir herstjórn að ráða. Þetta bendir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra á. Hann er gestur fyrsta þáttar Spursmála á nýju ári. Þar ræðir hann stórtíðindi af alþjóðasviðinu þar sem Bandaríkjamenn hafa lýst vesturhvel jarðar sem yfirráðasvæði sitt og auk þess gripið til aðgerða til þess að tryggja það.
Aðild kann að veikja stöðu okkar
Í þættinum ræðir Björn fyrirætlanir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að sækja um aðild að Evrópusambandinu en hann telur að aukin áhersla á það að leita undir verndarvæng ESB kunni að veikja stöðu okkar gagnvart Bandaríkjunum sem tryggt hafa varnir landsins í yfir 80 ár.
Einnig er rætt um stöðuna í stjórnmálunum hér heima fyrir þar sem ráðherrakapall setur svip sinn á pólitíska sviðið. Björn Ingi Hrafnsson, ...
- Title
- #104. - Evrópubrölt gegn öryggishagsmunum Íslands
- Runtime
- 1:36:44
- Date posted
- 9 months ago
- Description
- Ef Ísland hyggst undirrita varnarsamning við Evrópusambandið verður að líta til þess að það hefur ekki yfir herstjórn að ráða. Þetta bendir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra á.Hann er gestur fyrsta þáttar Spursmála á nýju ári. Þar ræðir hann stórtíðindi af alþjóðasviðinu þar sem Bandaríkjamenn hafa lýst vesturhvel jarðar sem yfirráðasvæði sitt og auk þess gripið til aðgerða til þess að tryggja það.Aðild kann að veikja stöðu okkarÍ þættinum ræðir Björn fyrirætlanir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að sækja um aðild að Evrópusambandinu en hann telur að aukin áhersla á það að leita undir verndarvæng ESB kunni að veikja stöðu okkar gagnvart Bandaríkjunum sem tryggt hafa varnir landsins í yfir 80 ár.Einnig er rætt um stöðuna í stjórnmálunum hér heima fyrir þar sem ráðherrakapall setur svip sinn á pólitíska sviðið. Björn Ingi Hrafnsson, starfsmaður Miðflokksins og Andrea Sigurð...
- Title
- #104. - Evrópubrölt gegn öryggishagsmunum Íslands
- Runtime
- 1:36:44
- Date posted
- 9 months ago
- Description
- Ef Ísland hyggst undirrita varnarsamning við Evrópusambandið verður að líta til þess að það hefur ekki yfir herstjórn að ráða. Þetta bendir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra á.
Hann er gestur fyrsta þáttar Spursmála á nýju ári. Þar ræðir hann stórtíðindi af alþjóðasviðinu þar sem Bandaríkjamenn hafa lýst vesturhvel jarðar sem yfirráðasvæði sitt og auk þess gripið til aðgerða til þess að tryggja það.
Aðild kann að veikja stöðu okkar
Í þættinum ræðir Björn fyrirætlanir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að sækja um aðild að Evrópusambandinu en hann telur að aukin áhersla á það að leita undir verndarvæng ESB kunni að veikja stöðu okkar gagnvart Bandaríkjunum sem tryggt hafa varnir landsins í yfir 80 ár.
Einnig er rætt um stöðuna í stjórnmálunum hér heima fyrir þar sem ráðherrakapall setur svip sinn á pólitíska sviðið. Björn Ingi Hrafns...
- Title
- #103. - Ársuppgjör Spursmála: Hver á veiðiheimildirnar?
- Runtime
- 1:49:54
- Date posted
- 10 months ago
- Description
- Hvað hefur staðið upp úr á árinu 2025? Í íþróttum, tísku og stjórnmálum. Svörin við því fást í Spursmálum dagsins þar sem öflugir blaðamenn Morgunblaðsins stinga saman nefjum fyrir framan myndavélarnar í þessum síðasta þætti ársins.
Þar mæta til leiks Marta María Winkel, sem fer fyrir hinu geysivinsæla Smartlandi, Bjarni Helgason, aðstoðarfréttastjóri íþrótta á Morgunblaðinu og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður og stjórnmálaspekúlant.
Hispurslaus umræða
Þau skyggnast ekki aðeins yfir stærstu og áhugaverðustu fréttir ársins heldur leyfa sér einnig að velta vöngum yfir því hvað árið 2026 muni bera í skauti sér.
Létt, hispurslaus og upplýsandi umræða þar á ferð.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims. Hver á fiskinn í sjónum? Eða heimildirnar til þess að draga hann á land? Guðmun...
- Title
- #101. - Titringur á stjórnarheimilinu og jólaverslun í algeymi
- Runtime
- 1:39:37
- Date posted
- 10 months ago
- Description
- Hvert stórmálið skekur annað á vettvangi stjórnmálanna og nú er menntamálaráðherra sakaður um helbera valdníðslu. Hversu styrkum fótum situr ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Hefur hún stjórn á Flokki fólksins eða fara ráðherrar hans sínu fram, hvað sem tautar og raular?
Þetta er meðal þess sem stjórnmálamennirnir fyrrverandi, Össur Skarphéðinsson og Sigurður Kári Kristjánsson hyggjast kryfja inn að beini á vettvangi Spursmála í dag.
Jólaverslun og kræsingar
Þeir mæta til Stefáns Einars á óhefðbundinn upptökustað. Þátturinn er að þessu sinni sendur út frá Austurstræti, nánar tiltekið gömlu höfuðstöðvum Landsbankans. Tilefnið er tveggja ára afmæli þáttarins en honum var hleypt af stokkunum 1. desember árið 2023.
Síðan þá hefur 101 reglubundinn þáttur verið sendur út frá myndveri í Hádegismóum...
- Title
- #102. - Ragnandi þingforseti og borgarlína í uppnámi
- Runtime
- 1:53:28
- Date posted
- 10 months ago
- Description
- Blótsflaumur forseta Alþingis hefur dregið dilk á eftir sér og nú rísa stjórnmálaflokkar upp gegn fyrirhuguðu skipulagi borgarlínunnar. Þá keppa Íslendingar ekki í Eurovision meðan gyðingar taka þar þátt.Í fyrsta hluta þáttarins mæta þau Eggert Skúlason, fjölmiðlamaður með meiru og Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis og stjórnarmaður í RÚV og ræða fréttir vikunnar.
Þar ræða þau meðal annars um hvort Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta þingsins, sé sætt eftir að hún kallaði stjórnarandstöðuþingmenn „djöfulsins, helvítis andskotans pakk.“Borgarlína í brennidepli
Í öðrum hlutanum ræða þau Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á sama vettvangi um borgarmálin.
Í morgun greindi Morgunblaðið frá því að óeining sé...
- Title
- #102. - Ragnandi þingforseti og borgarlína í uppnámi
- Runtime
- 1:53:28
- Date posted
- 10 months ago
- Description
- Blótsflaumur forseta Alþingis hefur dregið dilk á eftir sér og nú rísa stjórnmálaflokkar upp gegn fyrirhuguðu skipulagi borgarlínunnar. Þá keppa Íslendingar ekki í Eurovision meðan gyðingar taka þar þátt.
Í fyrsta hluta þáttarins mæta þau Eggert Skúlason, fjölmiðlamaður með meiru og Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis og stjórnarmaður í RÚV og ræða fréttir vikunnar.
Þar ræða þau meðal annars um hvort Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta þingsins, sé sætt eftir að hún kallaði stjórnarandstöðuþingmenn „djöfulsins, helvítis andskotans pakk.“
Borgarlína í brennidepli
Í öðrum hlutanum ræða þau Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á sama vettvangi um borgarmálin.
Í morgun greindi Morgunblaðið frá því að óeining sé...
- Title
- #101. - Titringur á stjórnarheimilinu og jólaverslun í algeymi
- Runtime
- 1:39:37
- Date posted
- 10 months ago
- Description
- Hvert stórmálið skekur annað á vettvangi stjórnmálanna og nú er menntamálaráðherra sakaður um helbera valdníðslu. Hversu styrkum fótum situr ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Hefur hún stjórn á Flokki fólksins eða fara ráðherrar hans sínu fram, hvað sem tautar og raular?Þetta er meðal þess sem stjórnmálamennirnir fyrrverandi, Össur Skarphéðinsson og Sigurður Kári Kristjánsson hyggjast kryfja inn að beini á vettvangi Spursmála í dag.Jólaverslun og kræsingarÞeir mæta til Stefáns Einars á óhefðbundinn upptökustað. Þátturinn er að þessu sinni sendur út frá Austurstræti, nánar tiltekið gömlu höfuðstöðvum Landsbankans. Tilefnið er tveggja ára afmæli þáttarins en honum var hleypt af stokkunum 1. desember árið 2023.Síðan þá hefur 101 reglubundinn þáttur verið sendur út frá myndveri í Hádegismóum, auk aukaþátta sem efnt hefur verið til vegna stórtíðinda á heima- og alþjóðavettvangi.Auk Sigurðar K...
- Title
- #101. - Titringur á stjórnarheimilinu og jólaverslun í algeymi
- Runtime
- 1:39:37
- Date posted
- 10 months ago
- Description
- Hvert stórmálið skekur annað á vettvangi stjórnmálanna og nú er menntamálaráðherra sakaður um helbera valdníðslu. Hversu styrkum fótum situr ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Hefur hún stjórn á Flokki fólksins eða fara ráðherrar hans sínu fram, hvað sem tautar og raular?
Þetta er meðal þess sem stjórnmálamennirnir fyrrverandi, Össur Skarphéðinsson og Sigurður Kári Kristjánsson hyggjast kryfja inn að beini á vettvangi Spursmála í dag.
Jólaverslun og kræsingar
Þeir mæta til Stefáns Einars á óhefðbundinn upptökustað. Þátturinn er að þessu sinni sendur út frá Austurstræti, nánar tiltekið gömlu höfuðstöðvum Landsbankans. Tilefnið er tveggja ára afmæli þáttarins en honum var hleypt af stokkunum 1. desember árið 2023.
Síðan þá hefur 101 reglubundinn þáttur verið sendur út frá myndveri í Hádegismóum, auk aukaþátta sem efnt hefur verið til vegna stórtÃ...
- Title
- Bókaspjall - Helförin með Þór Whitehead
- Runtime
- 1:26:26
- Date posted
- 10 months ago
- Description
- Það var ekki svo að nokkrir menn í Þýskalandi hafi vaknað upp morgun einn og ákveðið að útrýma öllum gyðingum. Morðhyggjan sem heltók Evrópu var langtímaþróun sem náði hámarki í helförinni.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í stórfróðlegu spjalli Þórs Whitehead, fyrrverandi prófessors í sagnfræði, á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála.
Í lok nóvember komu klúbbmeðlimir saman á Vinnustofu Kjarvals þar sem bókin Helförin í nýju ljósi, eftir breska fræðimanninn Laurence Rees var til umfjöllunar. Var þátttakan með miklum ágætum og um 80 manns sem mættu til leiks.
- Title
- #100.- Þjarmað að Guðrúnu og gallað fæðingarorlofskerfi?
- Runtime
- 1:40:34
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum þennan föstudaginn. Flokkur hennar mælist með sögulega lítið fylgi og kurr er meðal flokksmanna. Hvað telur hún til ráða?Þá mæta sjónvarpsmennirnir knáu Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson í þáttinn til að fara yfir helstu fréttir vikunnar. En nýverið hleyptu þeir af stokkunum þættinum Gott kvöld á Sýn. Þátturinn er sýndur á föstudagskvöldum og lofar virkilega góðu.Guðfinna Kristín Björnsdóttir, læknanemi í Danmörku, skrifaði fyrr í vikunni grein sem vakið hefur mikla athygli fyrir gagnrýni hennar á fæðingarorlofskerfið á Íslandi. Hún mætir á vettvang Spursmála og ræðir íslenska fæðingarorlofskerfið sem hún segir mjög brogað.
- Title
- #100. - Þjarmað að Guðrúnu og gallað fæðingarorlofskerfi?
- Runtime
- 1:40:34
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum þennan föstudaginn. Flokkur hennar mælist með sögulega lítið fylgi og kurr er meðal flokksmanna. Hvað telur hún til ráða?
Þá mæta sjónvarpsmennirnir knáu Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson í þáttinn til að fara yfir helstu fréttir vikunnar. En nýverið hleyptu þeir af stokkunum þættinum Gott kvöld á Sýn. Þátturinn er sýndur á föstudagskvöldum og lofar virkilega góðu.
Guðfinna Kristín Björnsdóttir, læknanemi í Danmörku, skrifaði fyrr í vikunni grein sem vakið hefur mikla athygli fyrir gagnrýni hennar á fæðingarorlofskerfið á Íslandi. Hún mætir á vettvang Spursmála og ræðir íslenska fæðingarorlofskerfið sem hún segir mjög brogað.

- #99. - Þungir dómar felldir og Kerecis sendir milljarð til Úkraínu
- Runtime
- 1:28:47
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Mikils titrings gætir meðal menningarelítunnar vegna leikhúsdóma Símons Birgissonar sem hann hefur birt að undanförnu á Vísi. Þar lætur hann leikskáld, leikstjóra og leikara gjarnan hafa það óþvegið og hafa sumar leiksýningar endað með svo lítið sem eina stjörnu.
Hann ræðir menningargagnrýni og gildi hennar ásamt Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Spursmálum dagsins. Kolbrún hefur lengi verið virkur þátttakandi í bókmenntagagnrýni hér á landi, ekki síst á vettvangi Kiljunnar í Ríkissjónvarpinu.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis en fyrirtæki hans hefur á undanförnum árum veitt stuðningi inn í stríðshrjáða Úkraínu og nemur hann í dag yfir milljarði króna.

- #98. - Tollastríð ESB og Íslands
- Runtime
- 46:30
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Evrópusambandið situr fast við sinn keip og leggur verndartolla á íslenskan iðnað. Hvað segja fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu um málið?
Það kemur fram í aukaþætti af Spursmálum sem efnt er til í ljósi nýjustu vendinga þar sem Evrópusambandið heldur fast við þá ákvörðun að leggja toll á kísilmálm sem framleiddur er á Íslandi og í Noregi.
Snorri Másson úr Miðflokki og Dagbjört Hákonardóttir frá Samfylkingu mæta á vettvang í Hádegismóum og takast á um stöðuna, ekki síst hvernig íslensk stjórnvöld hafa haldið á hagsmunagæslu fyrir hönd ríkisins.

- #97. - Er RÚV í sama vanda og BBC?
- Runtime
- 1:44:17
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Er íslenski ríkisfjölmiðillinn í sams konar vanda og BBC í Bretlandi sem nú sætir harðri gagnrýni fyrir vinnubrögð og hlutdrægni í fréttaflutningi sínum?
Þeir Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður í RÚV, og Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri og alþingismaður mæta í settið til að fara yfir málið. Þeir þekkja vel til málavaxta í Bretlandi þar sem fréttamenn urðu uppvísir að því að afvegaleiða áhorfendur þegar kom að umfjöllun um Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.
Þá ræða helstu fréttir vikunnar þær Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu, og Vigdís Hauksdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi borgarfulltrúi.
Í þeirri umræðu ber einna hæst ástand efnahagsmála í landinu en sú ákvörðun ESB að falla ekki frá hækkun verndartolla á framleiðsluvörur Elkem á Íslandi eru nýjasta d...
- Title
- #97. - Er RÚV í sama vanda og BBC?
- Runtime
- 1:44:17
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Er íslenski ríkisfjölmiðillinn í sams konar vanda og BBC í Bretlandi sem nú sætir harðri gagnrýni fyrir vinnubrögð og hlutdrægni í fréttaflutningi sínum?
Þeir Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður í RÚV, og Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri og alþingismaður mæta í settið til að fara yfir málið. Þeir þekkja vel til málavaxta í Bretlandi þar sem fréttamenn urðu uppvísir að því að afvegaleiða áhorfendur þegar kom að umfjöllun um Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.
Þá ræða helstu fréttir vikunnar þær Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu, og Vigdís Hauksdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi borgarfulltrúi.
Í þeirri umræðu ber einna hæst ástand efnahagsmála í landinu en sú ákvörðun ESB að falla ekki frá hækkun verndartolla á framleiðsluvörur Elkem á Íslandi eru nýjasta dæmið af mörgum skakkaföllum sem íslen...
- Title
- Bókaspjall: Við verðum að tala um Xi
- Runtime
- 1:08:21
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Hvert setur kínverski drekinn stefnuna? Er hætt við að Xi Jinping muni fyrirskipa næstöflugasta her í heimi að ráðast inn í Taívan? Þetta bar á góma á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála.
Í síðustu viku stóð klúbburinn fyrir samtali um bók Michaels Dillon, We need to talk about Xi, en hún var til umfjöllunar í októbermánuði.
Þátttaka á fundinum var afar góð og voru um 80 gestir á Vinnustofu Kjarvals meðan á umræðunni stóð.
Þar mættu til leiks þeir Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherra og Magnús Björnsson, einn helsti sérfræðingur Íslands í málefnum Kína.
Fór umræðan vítt og breitt og beindist meðal annars að því hvaða stöðu kínverska stórveldið hyggst taka sér á heimssviðinu á komandi áratugum.
Telur Magnús það afar ólíklegt að Kínverjar láti til skarar skríða. Ráði þar kalt hagsm...
- Title
- # 96. - Skipt um hjarta án snertingar
- Runtime
- 1:34:44
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Tæp tvö ár eru liðin frá því að Björn Zoëga tók við stjórn konunglega sjúkrahússins í Sádi-Arabíu. Þar er verið að brjóta blað í skurðaðgerðum með róbótum en einnig á sviði krabbameinslækninga.
Björn er gestur Spursmála þennan föstudaginn og ræðir meðal annars reynsluna sem hann hefur öðlast í fjarlægu landi en einnig hvernig staðan í íslensku heilbrigðiskerfi blasi við honum, nú þegar hann er hættur sem stjórnarformaður Landspítalans.
Í þætti dagsins er einnig rætt við borgarfulltrúana Líf Magneudóttur hjá VG og Magneu Gná Jóhannsdóttur, sem situr í borgarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn.
Þær hafa afar ólíka sýn á stöðu borgarsjóðs, skipulagsmál og margt fleira. Von er á líflegri umræðu milli þeirra nú þegar styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar.
- Title
- #. 96 - Skipt um hjarta án snertingar

- #.95 - Ríkislögreglustjóri valtur í sessi og ríkisborgaralottóið
- Runtime
- 2:11:28
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Ríkislögreglustjóri kveinkar sér undan hallarekstri en sólundar fjármunum almennings í rándýrar allsherjarráðgjöf. Á sama tíma er Landspítalanum gert erfitt um vik að ráða fólk til starfa.
Þeir mæta til leiks Árni Helgason, lögmaður, stjórnmálamaður og rithöfundur og Andrés Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu og ræða helstu fréttir vikunnar. Þar bera mál ríkislögreglustjóra hátt en einnig ítarleg skýrsla um helstu embættismannakerfi veraldarsögunnar þar sem rök eru færð fyrir því að kjörnir fulltrúar eigi að hafa sem minnst með stjórn landsins að gera.
Þá setjast þeir einnig niður á Spursmálavettvangi samstarfsmennirnir og mótherjarnir í þinginu, Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar og Jón Pétur Zimsen, varaformaður hennar.
Þeir komu báðir að ákvörðun í sumar sem leið sem leiddi til þess að bandaríska gjörgæsluhjúkrunarfræðingnum, J...
- Title
- # 95. - Ríkislögreglustjóri valtur í sessi og ríkisborgaralottóið
- Runtime
- 2:11:28
- Date posted
- 11 months ago
- Description
- Ríkislögreglustjóri kveinkar sér undan hallarekstri en sólundar fjármunum almennings í rándýrar allsherjarráðgjöf. Á sama tíma er Landspítalanum gert erfitt um vik að ráða fólk til starfa.
Þeir mæta til leiks Árni Helgason, lögmaður, stjórnmálamaður og rithöfundur og Andrés Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu og ræða helstu fréttir vikunnar. Þar bera mál ríkislögreglustjóra hátt en einnig ítarleg skýrsla um helstu embættismannakerfi veraldarsögunnar þar sem rök eru færð fyrir því að kjörnir fulltrúar eigi að hafa sem minnst með stjórn landsins að gera.
Þá setjast þeir einnig niður á Spursmálavettvangi samstarfsmennirnir og mótherjarnir í þinginu, Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar og Jón Pétur Zimsen, varaformaður hennar.
Þeir komu báðir að ákvörðun í sumar sem leið sem leiddi til þess að bandaríska gjörgæslu...
- Title
- #94. - Hamfarir á Grundartanga og meint bakslag
- Runtime
- 1:28:00
- Date posted
- 12 months ago
- Description
- Í þættinum verður birt brot úr viðtali við bandarískan gjörgæsluhjúkrunarfræðing, Joanne Blank að nafni, sem starfað hefur á Landspítalanum undanfarin ár. Hún sótti um ríkisborgararétt hér á landi í fyrra en Alþingi ákvað að hafna beiðninni. Nánar verður auk þess fjallað um mál hennar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Þá mæta á vettvang þingmennirnir Eiríkur Björn Björgvinsson, varaformaður atvinnuveganefndar þingsins og þingmaður Viðreisnar og Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Þeir fara yfir stöðuna sem upp er komin á Grundartanga eftir að mikilvægur búnaður skemmdist hjá Norðuráli en bilunin mun hafa gríðarleg áhrif á afkastagetu álversins á komandi mánuðum og þar með á útflutningstekjur Íslands.
Í samtali við þá er einnig rætt um þær skattahækkanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur ráðist í og hvaða áhrif þ...
- Title
- #94. - Hamfarir á Grundartanga og meint bakslag
- Runtime
- 1:28:00
- Date posted
- 12 months ago
- Description
- Í þættinum verður birt brot úr viðtali við bandarískan gjörgæsluhjúkrunarfræðing, Joanne Blank að nafni, sem starfað hefur á Landspítalanum undanfarin ár. Hún sótti um ríkisborgararétt hér á landi í fyrra en Alþingi ákvað að hafna beiðninni. Nánar verður auk þess fjallað um mál hennar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Þá mæta á vettvang þingmennirnir Eiríkur Björn Björgvinsson, varaformaður atvinnuveganefndar þingsins og þingmaður Viðreisnar og Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Þeir fara yfir stöðuna sem upp er komin á Grundartanga eftir að mikilvægur búnaður skemmdist hjá Norðuráli en bilunin mun hafa gríðarleg áhrif á afkastagetu álversins á komandi mánuðum og þar með á útflutningstekjur Íslands.
Í samtali við þá er einnig rætt um þær skattahækkanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur ráðist í og hvaða áhrif þær aðgerðir munu hafa á ...
- Title
- #93. - Dæmdur saklaus og uppgjör við bensínstöðvarlóðir
- Runtime
- 2:34:02
- Date posted
- 12 months ago
- Description
- Steinþór Gunnarsson var dæmdur í fangelsi, bæði í héraði og af Hæstarétti. Framkvæmd var húsleit hjá honum og hann handtekinn fyrir framan son sinn. Að lokum kom í ljós að hann hafði engin lög brotið.
Steinþór rekur sögu sína í dæmalausu viðtali á vettvangi Spursmála í dag þar sem ekkert er dregið undan.Listamenn og fréttir vikunnar
Þá mæta á vettvang listamennirnir Magnús Jóhann Ragnarsson, píanóleikari og tónskáld og Kjartan Logi Sigurjónsson, grínisti. Þeir fara yfir fréttir vikunnar en ræða einnig áhugaverð verkefni sem þeir hafa unnið að á síðustu misserum.
Þá takast þau á um hina umdeildu lóðasamninga sem Reykjavíkurborg gerði á sínum tíma við olíufélögin stóru, þau Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi alþingismaður.
Á sínum s...

Hvað gerði borgin við lóðirnar?
Þá takast þau á um hina umdeildu lóðasamninga sem Reykjavíkurborg gerði á sínum tíma við olíufélögin stóru, þau Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi alþingismaður.
Ã...
- Title
- Bókaspjall á Kjarval: Hagfræði í hnotskurn
- Runtime
- 1:04:08
- Date posted
- 12 months ago
- Description
- Bók septembermánaðar í Bókaklúbbi Spursmála var Hagfræði í hnotskurn, eftir Henry Hazlitt, klassískt rit um málefni sem varðar alla. Af því tilefni settist Stefán Einar niður með Ásdísi Kristjánsdóttur hagfræðingi og bæjarstjóra í Kópavogi til að ræða um bókina og hagfræðina í víðum skilningi.
Samtalið var hljóðritað þann 24. september í Fantasíusalnum á Vinnustofu Kjarvals.