RÚV
Uppsetning á Söngvakeppninni 2016 í Laugardalshöll
- Title
- Uppsetning á Söngvakeppninni 2016 í Laugardalshöll
- Runtime
- 1:45
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Undirbúningur fyrir úrslitakvöld Söngvakeppninnar í Laugardalshöll 20. febrúar 2016.
- Title
- María Ólafs og Friðrik Dór - Lítil skref / Í síðasta skipti (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:39
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Title
- Opnunaratriði úrslitakvölds Söngvakeppninnar 2016
- Runtime
- 11:35
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Title
- Hear Them Calling – Greta Salóme (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:01
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Sigurvegari Söngvakeppninnar 2016.
Lag og texti: Greta Salóme Stefánsdóttir
Flytjandi: Greta Salóme Stefánsdóttir
- Title
- Eye of the Storm – Karlotta Sigurðardóttir (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:06
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag: Kristinn Sigurpáll Sturluson, Ylva Persson og Linda Persson
Texti: Ylva Persson og Linda Persson
Flytjandi: Karlotta Sigurðardóttir
- Title
- Á ný – (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:06
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag og texti: Greta Salóme Stefánsdóttir
Flytjandi: Elísabet Ormslev
- Title
- Now – Alda Dís Arnardóttir (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:11
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag: Alma Guðmundsdóttir og James Wong
Texti: Alma Guðmundsdóttir og James Wong
Flytjandi: Alda Dís Arnardóttir
- Title
- Ready to Break Free – Þórdís Birna og Guðmundur Snorri (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:07
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag: Júlí Heiðar Halldórsson
Texti: Guðmundur Snorri Sigurðarson
Flytjendur: Þórdís Birna Borgarsdóttir og Guðmundur Snorri Sigurðarson
- Title
- I Promised You Then – (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:05
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag og texti: Þórunn Erna Clausen
Flytjendur: Hjörtur Traustason og Erna Hrönn Ólafsdóttir
- Title
- Vinnum þetta fyrirfram - Páll Óskar
- Runtime
- 4:05
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Sjáið afmælislagið eftir Pál Óskar Hjálmtýsson fyrir Söngvakeppnina 2016 í heild sinni hér.
- Title
- Högni Egilsson - All Out of Luck
- Runtime
- 4:33
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Title
- Á ný - Elísabet Ormslev (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:15
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag og texti: Greta Salóme Stefánsdóttir
Flytjandi: Elísabet Ormslev
Texti:
Birtu bregður jörðin hljóð
Bíður nóttin þolinmóð
Eftir mér, bíður eftir mér.
En það dafnar ljós í dimmunni
sem dansar um og faðmar mig
Tíminn frýs og staðnar allt um stund.
Á ný, er eins og þú sért aftur hér, á ný.
Og svo á ný, er allt eins og það áður var, á ný.
Og ég kveð þig, kveð þig svo á ný.
Vaki´á meðan jörðin mín
Værum svefni sefur í
Vaki´og bíð, ein ég vaki´og bíð.
Og það brestur lágt í nóttinni
Og bærist ljós í dimmunni
Tíminn frýs og staðnar allt um stund.
Á ný, er eins og þú sért aftur hér, á ný.
Og svo á ný, er allt eins og það áður var, á ný.
Og ég kveð þig svo á ný, en ég sé þig svo á ný
En ég kveð þig, kveð þig.
Oooh
- Title
- Ég leiði þig heim - Pálmi Gunnars (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:10
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag og texti: Þórir Úlfarsson
Flytjandi: Pálmi Gunnarsson
Texti:
Það gerðist allt svo hratt
þá lífið snéri við
það er svo ótal margt
sem þolir enga bið
nú saman við biðjum því
við vitum jú að lífið liggur við
úr huganum aldrei víkur frá vonin
ég ferðast mun allt með þér
þótt langur sé sá vegur
með tímanum munu sárin þó gróa
ef allt fer á betri veg
ég leiði þig heim
hver örlát hjálparhönd
svo sterk þau vinabönd
svo ung og fögur sál
i æðum logar bál
nú saman við biðjum því
við vitum jú að lífið liggur við
úr huganum aldrei víkur frá vonin
ég ferðast mun hvert sem er
ég leiði þig heim
þó að meinið hafi sótt á þig
þá lifir enn sami kraftur í þér
nú ég þrái heitt það kraftaverk
að senn ,èg sjá...
- Title
- Spring yfir heiminn - Þórdís og Snorri (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:04
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag: Júlí Heiðar Halldórsson
Texti: Júlí Heiðar Halldórsson og Guðmundur Snorri Sigurðarson
Flytjendur: Þórdís Birna Borgarsdóttir og Guðmundur Snorri Sigurðarson
Texti:
Lífið er svo stutt
Getum við farið til baka
Finnst ég gufa upp
Hverfa’oní gröfina og glatast
Hvað ég skil eftir mig
Minningin mín hún mun lifa
Ætla’að lofa’ykkur því
Lofa að nýta vel tímann
Nú, nú
Ég spring yfir heiminn
Manstu þegar þú baðst um mína hönd til þess að halda
Þegar allt var eins og það var, einfaldara
Bara við!
Og brosið þitt var allt sem mér fannst vert að sjá
Með heiminn milli handa hélt ég kæmist aldrei það hátt
Með ævintýraþrá ég vildi tapa mér og missa
Viss að fætur þínir fylgdu en þú stóðst í stað
Ef að það var málið mitt að mála líf sem ekki særir
Þyrfti ég þ...
- Title
- Augnablik - Alda Dís (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:10
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag: Alma Guðmundsdóttir og James Wong
Texti: Alma Guðmundsdóttir, James Wong og Alda Dís Arnardóttir
Flytjandi: Alda Dís Arnardóttir
Texti:
Sama hvað ég reyn’að gleyma
Það gerist ekki neitt
Gömul mistök,
læt mig dreyma!
Að ég geti öllu breytt
Eftirsjá er sama og tap
Sættumst við það sem var
Ljósið skín á björtu hliðarnar
Framtíðin er enn óskrifað blað!
Kveðjum þaðsem miður fór því að
Við eigum daginn í dag
Hvert augnablik
Sem er og verður
Lífið er of dýrmætt til að
dvelja’á brostni leið
Nú er tíminn,
leggjum af stað
leiðin virðist greið
Eftirsjá er sama og tap
Sættumst við það sem var
Ljósið skín á björtu hliðarnar
Framtíðin er enn óskrifað blað
Kveðjum það sem miður fór því að
Við eigum...
- Title
- Óvær - Helgi Valur (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 2:55
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag og texti: Karl Olgeirsson
Flytjandi: Helgi Valur Ásgeirsson
Texti:
Hún er yndisleg, ómótstæðileg
og í augum brennur eldur
hún gæti jafnvel farið heim með þér
í kvöld, minn kæri vin
En hún er óróleg, spinnur skuggavef
án hiks hún rifi’ úr þér hjartað
þig langar en þú færð ei hamið
villta sál, minn kæri vin
Hún er óvær
hún kemur inn á kvöldin
og tekur af þér völdin
Hún er óvær
Hjartað í þér brennur
Blóðið hraðar rennur
Hún er óvær
Hún kastar þér en heldur þinni sál
Hún er iðin snót með sinn fima fót
Víst er hún rétt að byrja
Kannski væri ráð að slaka á
og róa sig um sinn
En vittu veslings þú að hún er einmitt sú
sem lygnir villtan storminn
Þú veist að þú munt halda verri leið
í kvöld, minn kæri vin. <...
- Title
- Ótöluð orð - Erna og Magnús (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:10
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lag og texti: Erna Mist og Magnús Thorlacius
Flytjendur: Erna Mist og Magnús Thorlacius
Texti:
Lítil á sem fjöllin sker
alltaf ókunnug var mér
eins og orð sem aldrei sagðir þú mér frá
Mörg þú áttir leyndarmál
sem ég aldrei fékk að sjá
líkt og regnbogi sem sífellt flýr mér frá
Og mig langar til að segja sem var aldrei sagt
þögnin hefur lífið okkar undirlagt
Alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð
Segðu mér það muni lægja einhvern dag
Aldrei liti áttum við
sem gátu málað himininn
en þessa hluti aldrei sagði ég við þig
En skugga tvo við áttum þó
sem málað gátu dag og nótt
Ég á enn ósunginn söng til þín frá mér
En mig langar til að segja sem var aldrei sagt
þögnin hefur lífið okkar undirlagt
Alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð
Segðu mér ...
- Title
- Gleðibankinn í útfærslu 101 Boys
- Runtime
- 3:02
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- 101 boys, sem skipuð er þeim Sturlu Atlas, Loga Pedro, Jóhanni Kristófer og Unnsteini Manuel, fluttu sína útgáfu af Gleðibankanum í Söngvakeppninni sem hófst núna klukkan átta í Háskólabíói.
Lagið þekkja flestir en það var það fyrsta sem sent var fyrir Íslands hönd í Eurovision, en það var árið 1986. Lagið er eftir Magnús Eiríksson.
- Title
- Kreisí - Sigga Eyrún (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:04
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Flytjandi: Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
Lagahöfundur: Karl Olgeirsson
Textahöfundar: Karl Olgeirsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
Texti:
Út um gluggann, niðrá götu
Kolsvartur köttur eltir ljósið
Þarn‘ ert þú, á sama stað
Ég sé þig á hverju kvöldi
Ég ætt‘ að tak‘ upp símann, hringja strax í þig
Tími til að stíga upp á næsta stig
Þett’er út í hött
Ég sé þennan kött
Og man ekki hvað átt‘að gerast
Allt í beinni, trylltur leikur
í Ping-Pong móti sjálfri mér
Tækifærið, nún‘er tíminn,
’n ég er föst og kemst ekki burt
Ég heyri fótatakið halda sína leið
óafvitandi um mína miklu neyð
Það hrærir í mér, ég veit að ég er
Að verða svolítið kreisí haaaaaa!
Svolítið kreisí, svolítið kreisí
að verða svolítið kreisí
B...
- Title
- Óstöðvandi - Karlotta Sigurðardóttir (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:00
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Flytjandi: Karlotta Sigurðardóttir
Höfundar: Kristinn Sigurpáll Sturluson, Linda Persson og Ylva Persson
Texti:
Í húmi næturstormanna - stormanna við dönsuðum við brestina
Er sál min hrópar nú er nóg - nú er nóg mun ég finna mína innri ró
Glæðurnar loga enn inn í mér
Hitinn magnast af stað ég fer
Viðlag
Ég er hér ennþá, ég hik ́ekki meir brýst gegnum storminn óstōðvandi úooo
ég rís ofar ōllu og ég stend á eftir sterk inní vindaugað
nú held ég af stað ég hik ́ekki meir allt sem ég hef óttast mun hverfa þar úooo
úooo
óstōðvandi
þó mér líði sem vanmáttug
ég breið'úr vængjunum og hef mitt flug
Glæðurnar loga enn inn í mér
Hitinn magnast af stað ég fer
Viðlag
Ég er hér ennþá, ég hik ́ekki meir brýst gegnum storminn óstōðvandi úooo
...
- Title
- Raddirnar - Greta Salóme (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:02
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Flytjandi: Greta Salóme
Lag og textahöfundur: Greta Salóme
Grafík: Ólöf Erla Einarsdóttir og Jonathan Duffy
Texti:
Úti dansa skuggar
og þeir skríða á eftir mér.
Læðast inn í huga
minn og leika sér.
Og yfir svarta sandana
við stígum hægt.
Svo ég heyri þegar kallað er:
Ég heyri raddirnar
þær eru allsstaðar.
Ó leiðið okkur að lokum heim.
og yfir auðnina
og inn í nóttina
leiðið okkur að lokum heim.
Nístir inn að beini
napur vindur þenur sig
og það er sama hvað ég reyni
ó, hann fangar mig.
Og yfir svarta sandana
við stígum hægt.
Svo ég heyri þegar kallað er:
Ó, ég heyri, ég heyri raddirnar
Ooooh.
Ó, ég heyri, ég heyri raddirnar
Ooooh.
- Title
- Fátækur námsmaður - Ingó Veðurguð (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:11
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Flytjandi, lag og textahöfundur: Ingólfur Þórarinsson
Íslenskur texti
Ég vaknaði upp í dag en ég fann strax að það var eitthvað að
Leit á vekjaraklukkuna og hún sagði drífðu þig af stað
Ég greiddi minn úfna haus en svo mundi ég að ég var bensínlaus
Mamma viltu lána mér ég skal lofað borga þér
Fátækur námsmaður ég er og hef bar´enga vinnu
Mamma og pabbi sjá fyrir mér og systur minni Tinnu
Af hverju bý ég ennþá hér en er ei löngu fluttur
Mamma og pabbi sjá fyrir mér, ætt'að koma mér í burtu.
Ég reyni að elda mat en ég kveiki í, já ég klúðra því
Og námslánin mín frá LÍN fara beint í föt eða fyllerí
(Ég held að) kennarinn hati mig en ég veit hann þolir illa sjálfan sig
Mig langar á tónleika en ég fer bara ef að ég fæ fríííímiiiiðaaaaa
Fátækur námsmaður ég er og hef bar´enga vinnu
- Title
- Hugur minn er - Erna Hrönn og Hjörtur Traustason (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:03
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Flytjendur Erna Hrönn Ólafsdóttir og Hjörtur Traustason
Lag og textahöfundur: Þórunn Erna Clausen
Texti:
Hann hugur minn er þegar hausta fer.
Hann hjartað mitt ber ennþá í brjósti sér.
Minningin munaður er, er máninn á himninum skín.
Fram streyma mín tár því ástin hún aldrei dvín.
Hann hugur minn er,
ástin kemur og fer.
Hve lengi ég beið,
en þú fórst þína leið.
Ég stari inn í tímann og sé þar ókomna tíð.
Ég einmana verð um ár og síð.
Ég trúði á elífa ást en vonin hún brást.
Enginn mér verður það sem þú varst
Hún hugur minn er,
ástin kemur og fer.
Hve lengi ég beið,
en þú fórst þína leið,
ó þína leið
ó þína leið
ó þína leið
Ég finn þú faðmar mig blítt,
hjartað slær ótt og títt.
Hve stutt er sú stund
er ei...
- Title
- Ég sé þig - Hljómsveitin Eva (Söngvakeppnin 2016)
- Runtime
- 3:03
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Flytjandi: Hljómsveitin Eva
Lag og texti: Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoniasardóttir.
Texti:
Kebabkofar og tevagnar, kryddbásar og teppi.
Klæðskerar og sundlaugar, tangóar og epli.
og ég sé þig
og ekki hvaðan þú ert að koma
ég sé þig
og ekki hvað þú virðist vera
ég sé þig
og ég veit hvað ég þarf að gera
ég sé þig
og það sem gerir þig eins og mig
Flugdrekar og kastalar, kábojar og slæður.
Spákonur og kærastar, kviðmágar og bræður.
Við erum öll um borð í bát
sem bifast áfram gegnum tímann.
Leyfum ekki heimsku og hatri
að láta ' hann sökkva leiðumst heim að strönd.
og ég sé þig þig
og ekki hvaðan þú ert að koma
ég sé þig þig
og ekki hvað þú virðist vera
ég sé þig þig
og ég veit hvað ég þarf að gera
...
- Title
- Vinnum þetta fyrirfram - Páll Óskar
- Runtime
- 1:21
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Afmælislag eftir Pál Óskar Hjálmtýsson fyrir Söngvakeppnina 2016.
- Title
- Spaugstofan Andspyrnuhreyfingin
- Runtime
- 0:43
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Allra síðasti þáttur Spaugstofunnar verður frumsýndur á RÚV annað kvöld. Þar með lýkur merkilegum kafla í íslenskri sjónvarpssögu, en Spaugstofan hefur verið einn ástsælasti og vinsælasti sjónvarpsþáttur landsins um áratugaskeið.
Spaugstofan hefur verið starfandi, með hléum og í ýmsum myndum, frá því seint á níunda áratugnum. Á þessum rúma aldarfjórðungi hefur hópurinn gert hátt í 500 þætti. Og nú er komið að þeim síðasta.
Andspyrnuhreyfingin
Í Andspyrnuhreyfingunni fer gamalkunnug sveit ástsælla karaktera úr Spaugstofuþáttunum á merkilegt flakk í lítilli Volkswagen bjöllu. Markmiðið er að upplýsa í eitt skipti fyrir öll hvað þjóðin lærði af hruninu. Með sérútbúnum njósnatækjum skyggnist sveitin inn á ýmsa staði, m.a. Bessastaði, Ráðhúsið og Alþingi. Förin reynist forvitnileg í meira lagi og kemur það á daginn að hún er alls ekki hættulaus.
Þátturinn...
- Title
- Kvennakórinn Katla - Draumaprinsinn
- Runtime
- 2:35
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Kvennakórinn Katla tekur lagið Draumaprinsinn eftir Magnús Eiríksson úr kvikmyndinni Okkar á milli.
Þessi útgáfa var tekin upp fyrir fréttaannál RÚV 2015
- Title
- Steindi jR ft. Egill Ólafs – Allir með (HD)
- Runtime
- 6:43
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lokalag Áramótaskaupsins 2015.
Ókeypis MP3 hér - http://www.stopwaitgo.is/skaup
Lag og texti:
stopwaitgo og Steindi jR
http://stopwaitgo.is/
Horfið á skaupið 2015 hér: http://www03.ruv.is/skaup2015
- Title
- Þáttaröðin Rætur hefst 3. janúar
- Runtime
- 0:36
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Fróðlegur og skemmtilegur þáttur um fólk sem á rætur um allan heim, en hefur af ólíkum ástæðum sest að á Íslandi. Næstum því einn af hverjum tíu íbúum Íslands er af erlendum uppruna. Sumir komu hingað af því að þá langaði til þess, aðrir áttu fáa aðra kosti.
- Title
- Stóra sviðið hefst 3. janúar
- Runtime
- 0:46
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Íslensk heimildarþáttaröð þar sem áhorfendur fá einstaka sýn inn í töfraheim leikhússins og fylgjast með flóknu sköpunarferli sem á sér stað frá því að leikararnir fá handritið í hendurnar og fram yfir frumsýningu. Dagskrárgerð: Þorsteinn J.
- Title
- Ævar Vísindamaður aftur á skjáinn í janúar
- Runtime
- 0:41
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Ævar vísindamaður setur allt milli himins og jarðar undir smásjána og rannsakar eins og honum einum er lagið. Fróðleikur og skemmtun fyrir forvitna krakka á öllum aldri. Umsjón: Ævar Þór Benediktsson.
- Title
- Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
- Runtime
- 0:33
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Upptaka frá jólatónleikum Sinfóníunnar sem fram fóru í Hörpu í desember. Hátíðleiki og sígildar jólaperlur voru fluttar. Ungir tónlistarsnillingar, reynsluboltar, bjöllukór og kórar Langholtskirkju ásamt táknmálskórnum Litlu sprotunum og fleiri.
- Title
- Afmælistónleikar Diddú annan í jólum
- Runtime
- 0:50
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Upptaka frá afmælistónleikum Diddúar sem fram fóru í Hörpu 13. september sl. og fer Diddú fer yfir farsælan ferilinn í tveimur þáttum. Í fyrri hluta syngur hún sígild lög og aríur sem eru henni hjartfólgnar ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands.
- Title
- Sirkus Íslands Heima er best
- Runtime
- 0:27
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Upptaka frá sýningu hins rammíslenska Sirkuss Íslands. Ævintýraleg blanda af trúðslátum, kollhnísum, listum og loftfimleikum. Boltafimi, jafnvægislistir á einhjóli og bretti og margt fleira. Heima er best er íslensk sirkussýning fyrir alla fjölskylduna. Dagskrárgerð: Benedikt Nikulás Anes Ketilsson.
- Title
- Óperan Ragnheiður sýnd á Jóladag
- Runtime
- 0:23
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson var frumsýnd hjá Íslensku óperunni í mars síðastliðnum og er óhætt að segja að hún hafi slegið gjörsamlega í gegn, því uppselt var á allar sýningar og komust færri að en vildu. Bæði gagnrýnendur og gestir spöruðu ekki hrósyrðin og hlaut sýningin fimm stjörnur margra gagnrýnenda. Þá sópaði hún að sér tilnefningum og verðlaununum á Grímunni 2014, þar sem hún var meðal annars valin Sýning ársins 2014. Óperan verður sýnd á Jóladag á RÚV.
Í aðalhlutverkum eru Þóra Einarsdóttir sem Ragnheiður biskupsdóttir, Viðar Gunnarsson í hlutverki Brynjólfs Sveinssonar biskups, og Elmar Gilbertsson í hlutverki Daða Halldórssonar, en lesa má nánar um hlutverkaskipan hér. Hljómsveitarstjóri er Petri Sakari og leikstjóri er Stefán Baldursson.
Óperan fjallar um Ragnheiði Brynjólfsdóttur, biskupsdóttur í Skálholti á 17. öld, ástarsa...
- Title
- Jóladagskrá RÚV 2015
- Runtime
- 1:10
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Kynntu þér fjölbreytta dagskrá RÚV yfir jól og áramót í heild sinni hér: http://www03.ruv.is/kynning/joladagskra/
- Title
- Árið er... Söngvakeppnin í 30 ár
- Runtime
- 0:38
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Árið 2016 verða liðin 30 ár frá því að Ísland sendi lag í Eurovision í fyrsta sinn. Af því tilefni er hér farið yfir þriggja áratuga sögu Söngvakeppninnar í tali, tónum og myndum. Dagskrárgerð: Gunnlaugur Jónsson og Ásgeir Eyþórsson.
- Title
- Jólavaka RÚV á laugardaginn
- Runtime
- 0:37
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Jólavaka RÚV, lifandi skemmti- og fjölskylduþáttur, verður haldin laugardaginn 19. desember.
Stúlknakór Reykjavíkur flytur fagra jólatóna og góðir gestir mæta í sjónvarpssal.
Meðal gesta eru Jón Gnarr, Baltasar Kormákur, Una Torfadóttir og Frú Vigdís Finnbogadóttir. Söngvarar ársins þau Valdimar og Salka Sól flytja jólalag, Hrefna Sætran stendur jólavaktina í eldhúsinu, skroppið verður til Akureyrar og hljómsveitin Baggalútur flytur nýtt lag.
- Title
- Leifur óheppni í Útvarpsleikhúsinu um jólin
- Runtime
- 0:34
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Title
- Ófærð stikla
- Runtime
- 0:57
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Title
- Ófærð lengri stikla
- Runtime
- 2:40
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Title
- Klukkur um jól - stikla
- Runtime
- 1:03
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Klukkur um jól er ný leikin jólamynd í þremur hlutum fyrir alla fjölskylduna. Í myndinni er sögð hjartnæm saga af íslenskum krökkum, jólasaga sem tekur á brýnum viðfangsefnum á borð við einelti, fordóma, mikilvægi vinskaparins og að tala um tilfinningar sínar. Höfundur sögunnar er Guðjón Davíð Karlsson og leikstjóri og framleiðandi er Bragi Þór Hinriksson
- Title
- Yana Ross í viðtali hjá Menningunni
- Runtime
- 4:19
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Menningin í Kastljósi 20. október 2015
- Title
- Villi fjallar um hópfjármögnun - Toppstöðin
- Runtime
- 0:41
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Title
- Sjálandsskóli flytur lag eftir Megas í Tónahlaupi
- Runtime
- 4:48
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Megas afhenti nokkrum nemendum Sjálandsskóla A4 blað með frumsömdu lagi sem þau fullmótuðu og útsettu á nokkrum mánuðum, og fluttu síðan í myndveri RÚV í Tónahlaupi.
Útgáfa krakkanna af laginu var nokkuð reggískotinn og virtist Megas ánægður með flutninginn, þrátt fyrir að hann sjálfur hefði líklega flutt það í meiri kántrí stíl.
Krakkarnir sem útsettu og fluttu lagið voru þau Andri Páll Halldórsson, Emil Eyþórsson, Fannar Ingi Fjölnisson, Ísak Þorsteinsson, Jakob Fjólar Gunnsteinsson, Sonja Arnþórsdóttir og Þóra Birgisdóttir. Nutu þau aðstoðar tónmenntakennarans Ólafs Schram.
- Title
- Megas í Tónahlaupi
- Runtime
- 1:07
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Megas gerði lag fyrir Sjálandsskóla til að útsetja sem sýnt er í Tónahlaupi á RÚV 21. október 2015.
Jónas Sen ræðir við ólíka tónlistarmenn sem líta um öxl og rifja upp tónlistarmenntun sína. Ný lög eru samin sem þeir fara með í nokkra grunnskóla þar sem þau eru frumflutt af börnum og unglingum.
- Title
- Páll Óskar í Stundinni okkar
- Runtime
- 0:34
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Title
- Ríó Tríó og Snorri Helgason hita upp fyrir Vikan með Gísla Marteini
- Runtime
- 1:51
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Ríó Tríó og Snorri Helgason hita upp fyrir Vikan með Gísla Marteini.
- Title
- Lay Low og Grunnskólinn í Þorlákshöfn - Tónahlaup
- Runtime
- 3:18
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Lay Low gerði lag fyrir Grunnskólann á Þorlákshöfn til að útsetja sem sýnt var í Tónahlaupi á RÚV 14. október 2015.
Jónas Sen ræðir við ólíka tónlistarmenn sem líta um öxl og rifja upp tónlistarmenntun sína. Ný lög eru samin sem þeir fara með í nokkra grunnskóla þar sem þau eru frumflutt af börnum og unglingum.
- Title
- Toppstöðin - Villi naglbítur
- Runtime
- 0:43
- Date posted
- 11 years ago
- Description
- Villi naglbítur spjallar um lyftuhugmyndir.
Í Toppstöðinni er fylgst með ólíkum hópum frumkvöðla í spennandi vegferð hugmyndar, af þróunarstigi til fullbúinnar vöru eða þjónustu. Meðal annars verður fylgst með nýjungum á sviði húsbygginga, símatækni, orku, eldsneytis, heilsuvara og afþreyingar fyrir börn svo fátt eitt sé nefnt. Hóparnir vinna undir dyggri leiðsögn sérfræðinga, dómarar gefa álit sitt og í lokaþættinum velja áhorfendur eftirlætisverkefnið sitt í símakosningu.
Umsjón: Vilhelm Anton Jónsson
Framleitt af Saga Film fyrir RÚV

